Úthlutun menningarstyrkja 2025

Menningarmálanefnd hefur úthlutað styrkjum Ísafjarðarbæjar til menningarmála fyrir árið 2025. 3,5 milljónir króna voru til úthlutunar að þessu sinni og alls hlutu 21 verkefni styrk.

28 umsóknir bárust í heildina þar sem óskað var eftir samtals 7,7 milljónum króna.

Verkefnin sem hlutu styrk eru eftirfarandi:

  • Sandra Borg Bjarnadóttir, f.h. Snadra ehf., vegna Vekjandi listasmiðju fyrir börn, kr. 133.000.
  • Anna Lilja Steinsdóttir, f.h. Dýrafjarðardaga, vegna Dýrafjarðardaga á Þingeyri, kr. 220.000
  • Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir, vegna Leiró - skapandi leikvöllur með leir, kr. 150.000
  • Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir, vegna Litlu netagerðarinnar, vegna jólainnsetningar í Aðalstræti, kr. 100.000
  • Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir, vegna Litlu netagerðarinnar, vegna viðburðaraðar í Litlu netagerðinni, kr. 200.000
  • Signý Þöll Kristinsdóttir, vegna tónleika í Dýrafjarðardagar, kr. 100.000
  • Bjarney Ingibjörg Gunnlaugsdóttir, f.h. Við Djúpsins, vegna Við Djúpið tónlistarhátíðar, kr. 250.000
  • Margeir Haraldssonar, f.h. Lýðskólans, vegna Blíðunnar sumarhátíðar, kr. 200.000
  • Elísabet Gunnarsdóttir, f.h. Kol og Salt, vegna afmælisdagskrár Úthverfu, kr. 250.000
  • Maksymilian Haraldur Frach, vegna Brúar 2025 - tónlistar fyrir eldri borgara, kr. 150.000
  • Steinunn Ása Sigurðardóttir, f.h. Leikfélags Flateyrar, vegna frumsamins leikrits í fullri lengd, kr. 200.000
  • Dagbjört Ósk Jóhannsdóttir, vegna sumarleikhúss á Ísafirði, kr. 200.000
  • Greta Lietuvninkaité-Suscické, vegna Write it Out: World Letter Writing Day, kr. 47.000
  • Lísbet Harðardóttir og Rannveig Jónsdóttir, f.h. LRÓ, vegna listasmiðju fyrir börn í dymbilviku, kr. 200.000
  • Halldóra Jónasdóttir, f.h. Leiklistarhóps Halldóru, vegna söngleikjasýningar um páskana, kr. 200.000
  • Agnes Eva Hjartardóttir, f.h. Leikfélags Menntaskólans á Ísafirði, vegna söngleiksins Grease, kr. 100.000
  • Steingrímur Guðmundsson, f.h. The Pigeon International Film Festival, vegna PIFF - alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar á Ísafirði, kr. 250.000
  • Guðjón Friðriksson, vegna ritunar gönguferðabókar um eldri bæjarhluta Ísafjarðar, kr. 100.000
  • Marsibil G. Kristjánsdóttir, vegna bókbandsnámskeiðs í Blábankanum, kr. 150.000
  • Helen Hafgnýr Cova Gonzales, f.h. Karíba ehf., vegna bókmenntahátíðar á Flateyrar, kr. 250.000
  • Kristín Berglind Oddsdóttir, vegna vísnakvölds á Þingeyri, kr. 50.000

Nánar:

Reglur um úthlutun styrkja til menningarmála