Útboð: Slökkvistöð á Suðurtanga -Burðarvirki
Slökkvistöð á Suðurtanga – Burðarvirki
Útboð nr. 2024120087
Ísafjarðarbær óskar eftir tilboðum í uppsteypu burðarvirkis fyrir nýja slökkvistöð á Suðurtanga, Ísafirði. Verkið felst í uppsteypu burðarvirkis fyrir byggingu sem hýsir m.a. stjórnstöð, starfsmannaaðstöðu og tækjasal.
Helstu dagsetningar
|
Liður |
Dagsetning |
|
Afhending útboðsgagna |
22. maí 2026 |
|
Kynningarfundur |
27. maí 2026 kl. 14:00 |
|
Fyrirspurnarfrestur |
4. júní 2026 |
|
Svör við fyrirspurnum |
8. júní 2026 |
|
Tilboðsfrestur |
10. júní 2026 kl. 15:30 |
Útboðsgögn verða aðgengileg frá og með 22. maí 2026.
Óska skal eftir útboðsgögnum hjá Axel Överby á netfanginu axelov@isafjordur.is. Fyrirspurnir skulu berast á sama netfang innan tilgreinds frests og verða svör send öllum sem hafa óskað eftir útboðsgögnum.
Tilboðum skal skila eigi síðar en 10. júní 2026 kl. 15:30, annað hvort í lokuðu umslagi eða með tölvupósti. Tilboð sem send eru með tölvupósti skulu berast á tilgreint netfang innan tilboðsfrests. Bjóðandi fær staðfestingu á móttöku tilboðs með tölvupósti. Berist slík staðfesting ekki telst tilboð ekki hafa borist og er bjóðandi ábyrgur fyrir því að ganga úr skugga um móttöku þess. Tilboð í lokuðu umslagi skulu berast á Stjórnsýsluhúsið, Hafnarstræti 1, 4. hæð, Ísafirði. Á umslagi skal koma fram heiti útboðs og nafn og aðsetur bjóðanda.
Tilboð verða opnuð í sal bæjarstjórnar að Hafnarstræti 1, 2. hæð, Ísafirði, miðvikudaginn 10. júní 2026 kl. 15:31, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Tilboð sem berast eftir tilgreindan skilafrest verða ekki tekin til greina. Við opnun tilboða verða kynnt nöfn bjóðenda, heildartilboðsfjárhæðir og kostnaðaráætlun kaupanda. Framsetning opnunarfundargerðar er með fyrirvara um að ekki hefur verið tekin afstaða til gildis tilboða og mat á þeim fer fram síðar.
