Uppfærðar reglur um hunda- og kattahald í Ísafjarðarbæ
23.03.2026
Fréttir
Nýjar reglur um dýrahald í Ísafjarðarbæ hafa tekið gildi með birtingu nýrrar samþykktar um hundahald 19. febrúar 2026 og samþykktar um kattahald 18. febrúar 2026, birt í B‑deild Stjórnartíðinda. Samþykktin leysir af hólmi eldri reglur frá 2013
Aðalbreytingin er sú að afnumin hefur verið leyfis- og skráningarskylda á köttum, en áður þurftu kettir í sveitarfélaginu að vera skráðir og með tilheyrandi leyfi.
Mælst er til að hunda- og kattaeigendur kynni sér samþykktirnar.
Eigendum skráðra hunda býðst árleg hreinsun sem er innifalin í leyfisgjaldi. Hreinsunin fer fram seint á haustin og er auglýst með frétt hér á vef Ísafjarðarbæjar og á Facebook-síðu bæjarins.
Umsókn um leyfi til hundahalds
Afskráning hunds
- Ekki er heimilt að halda fleiri en þrjá hunda á sama heimili, séu þeir eldri en 16 vikna. Umhverfis- og framkvæmdanefnd er heimilt að víkja frá skilyrði um fjöldatakmörkun sé um að ræða hunda sem notaðir eru til löggæslu- eða björgunarstarfa og minkahunda, svo og fyrir hunda sem að læknisráði eru notaðir til aðstoðar fötluðu fólki.
- Eigendum og umráðamönnum hunda er ávallt skylt að fjarlægja saur eftir hunda sína.
- Taumskylda er í Ísafjarðarbæ nema annað sé tekið fram og skal virða hana.
- Aðeins er heimilt að tjóðra hunda utandyra í undantekningartilvikum og þá einungis undir eftirliti í stuttan tíma í senn. Þegar hundur er í festi á lóð skal lengd festarinnar við það miðuð að þeir sem eiga réttmætt erindi inn á lóðina geti óhindrað farið um lóðina.
- Hafi eigandi eða umráðamaður ástæðu til að ætla að hundur hans sé grimmur eða varasamur skal hann sjá til þess að hundur hans sé ávallt mýldur utan heimilis síns.
- Gelda skal alla fressketti þegar þeir hafa náð 6 mánaða aldri, nema þeir séu notaðir til ræktunar.
- Kattaeigendum og umráðamönnum ber að taka tillit til fuglalífs á varptíma 1. maí til 31. ágúst, eftir því sem tök eru á, meðal annars með því að hengja bjöllur á hálsólar katta og halda þeim innandyra að næturlagi, frá kl. 24.00 að nóttu til kl. 07.00 að morgni.