55 þúsund rúmmetra dýpkun á höfninni
Álfsnesið, dýpkunarskip Björgunar, liggur nú við Ásgeirsbakka þar sem áhöfnin tekur sér tveggja vikna hlé áður en framkvæmdum verður haldið áfram eftir verslunarmannahelgi.
Skipið hefur komið til Ísafjarðar fjögur sumur í röð og unnið að umfangsmiklum dýpkunarframkvæmdum sem hafa styrkt innviði hafnarinnar. Í þessari lotu er unnið að því að breikka innsiglinguna um 20 metra og dýpka hana niður í 8 metra. Markmiðið er að gera stærri skipum kleift að sigla um sundin og inn í höfnina. Jafnframt er efni úr dýpkuninni nýtt til að stækka byggingaland á Suðurtanga og styðja við áframhaldandi uppbyggingu atvinnusvæðisins.
Í þessari framkvæmd verða alls teknir upp um 55 þúsund rúmmetrar af efni og þegar hafa um 40 þúsund rúmmetrar verið fjarlægðir.
Töf hefur orðið á framkvæmdunum þar sem Álfsnesið var kallað til verkefna við Landeyjahöfn. Nú er skipið komið aftur til Ísafjarðar og eftir tveggja vikna hlé verður dýpkunarvinnunni haldið áfram eftir verslunarmannahelgi.

Dýpkunarskipið Álfsnes
Bæjarstjórinn fór í heimsókn um borð gafst tækifæri til að ræða við skipstjórann, Ísfirðinginn Óttar Jónsson, sem flestir þekkja undir nafninu Láki. Hann sagði frá því hvernig dýpkunarstarfið fer fram og hversu nákvæm undirbúningsvinna þarf að liggja að baki áður en framkvæmdir hefjast.
Að sögn Óttars skiptir miklu máli að leggja góðan grunn að framkvæmdum með vönduðum rannsóknum, mælingum og skýrri framtíðarsýn. Vel undirbúin dýpkun nýtist ekki aðeins við lausn brýnna verkefna heldur getur hún einnig skapað tækifæri til framtíðar, bæði fyrir siglingar og uppbyggingu hafnarsvæða.
Skipstjórinn og Ísfirðingurinn Óttar Jónsson
Framkvæmdirnar eru mikilvægt skref í áframhaldandi þróun Ísafjarðarhafnar. Með bættri innsiglingu verður höfnin betur í stakk búin til að taka á móti stærri skipum. Til marks um þróunina lagðist skemmtiferðaskipið Scenic Eclipse, sem er um 168 metrar að lengd, að höfninni síðasta sumar sem er stærsta skip sem lagst hefur að höfn við Sundabakka.