Umsögn um endurskoðun á byggðakvótakerfinu

Bæjarráð Ísafjarðarbæjar samþykkti á fundi sínum 18. júní umsögn sveitarfélagsins vegna endurskoðunar á byggðakvótakerfinu sem Innviðaráðuneytið vinnur nú að.

Í umsögninni er lögð áhersla á mikilvægi byggðakvótans fyrir atvinnulíf og byggðafestu í sjávarbyggðum sveitarfélagsins. Bent er á að fyrirtæki og störf á Suðureyri, Flateyri og Þingeyri reiði sig á stuðninginn sem felst í byggðakvótakerfinu.

Frá sjónarhorni sveitarfélaganna er mikilvægast að 

  • aðgerðir skapi heilsársstörf, bæði útgerð og fiskvinnslu í sveitarfélaginu.
  • aðgerðin skili tekjum til sveitarfélagsins vegna rekstrar vinnslunnar og í útsvarstekjum.
  • aðgerðin sé raunhæf og framkvæmanleg.

Ísafjarðarbær telur mikilvægt að markmið byggðakvótans verði áfram að styðja við löndun og vinnslu afla í viðkomandi byggðarlagi og skapa þannig störf, verðmæti og tekjur fyrir samfélagið. Jafnframt er lögð áhersla á að breytingar á kerfinu séu vel ígrundaðar og fyrirsjáanlegar.

Umsögnin verður hluti af þeirri vinnu sem nú stendur yfir við mótun framtíðarfyrirkomulags byggðakvótakerfisins.