Tillaga að breytingu á aðalskipulagi vegna Réttarholtskirkjugarðs

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar, samþykkti þann 18. mars 2025 að auglýsa tillögu að breytingum á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020, í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna stækkun kirkjugarðs í Réttarholti, Skutulsfirði.
Skipulagstillagan er sett fram í greinargerð dags. 7. mars 2025 með uppdrætti í mkv. 1:10.000 og er unnin af Verkís ehf. skv. skipulagslögum nr. 123/2010 og lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.
Í breytingartillögunni felst stækkun svæðis fyrir þjónustustofnanir Þ16 úr 1,4 ha í 4,19 ha.
Tilgangur skipulagsins er að skapa svigrúm fyrir stækkun og uppbyggingu Réttarholtskirkjugarðs í Engidal í Skutulsfirði. Markmið Ísafjarðarbæjar með skipulagsgerðinni er að tryggja nægt framboð legstaða í Skutulsfirði fyrir öll trúfélög. Einnig að tryggja að framkvæmdir valdi sem minnstum neikvæðum áhrifum á umhverfið og að vandað verði til umhverfisfrágangs.
Aðalskipulagstillagan á uppdrætti og greinargerð eru í birtingu á Skipulagsgátt, mál nr. 574/2024, frá og með 5. maí 2025 til 19. júní 2025.
Aðalskipulagstillagan er einnig aðgengileg á uppdrætti og greinargerð með forsendum breytinga ásamt umhverfismati, á bæjarskrifstofum og hér fyrir neðan.
Athugasemdum við aðalskipulagstillögu má skila rafrænt um skipulagsgáttina eða beint til skipulagsfulltrúa Ísafjarðarbæjar: skipulag@isafjordur.is til og með 19. júní 2025, þar sem einnig er hægt að fá nánari upplýsingar og leiðbeiningar.
Skipulagsfulltrúi Ísafjarðarbæjar