Þrettándagleði fjölskyldunnar

Þrettándagleði fjölskyldunnar verður haldin í Ediborgarhúsinu á Ísafirði milli klukkan 16 og 18 á laugardag í samstarfi Ísafjarðarbæjar, Kómedíuleikhússins, Edinborgarhússins og Nettó. Boðið verður upp á fjölbreytta skemmtun; Álfasveitin leikur fyrir dansi og álfadrottning syngur, fulltrúar framtíðarinnar flytja álfa- og þrettándaljóð, hinn bústni og aldni Pottasleikir mætir á svæðið með bróður sínum Hurðaskelli auk þess sem foreldrar þeirra Grýla og Leppalúði hafa boðað komu sína.