Tafir á götusópun vegna bilunar á götusópara
26.06.2026
Fréttir
Vegna bilunar í götusópara Ísafjarðarbæjar verða tafir á götusópun næstu vikur. Beðið er eftir varahlut sem kemur erlendis frá og verður viðgerð framkvæmd um leið og hann berst.
Við biðjum íbúa og vegfarendur velvirðingar á þeim óþægindum sem tafirnar kunna að valda og þökkum fyrir sýndan skilning.
Unnið verður að því að hefja reglubundna götusópun á ný eins fljótt og auðið er að viðgerð lokinni.