Tafir á framkvæmdum við fráveitu- og veitukerfi á Þingeyri

Framkvæmdir við endurnýjun fráveitu- og veitukerfis á Þingeyri standa enn yfir. Vegna ófyrirséðra aðstæðna hafa orðið tafir á verkinu frá því sem áður var áætlað.

 

Tafirnar má rekja til þess að brjóta hefur þurft klöpp í skurðstæði auk þess sem komið hafa í ljós eldri lagnir sem ekki lágu fyrir upplýsingar um og tengja þarf inn á nýtt kerfi. Þessar aðstæður hafa kallað á viðbótarvinnu og breytingar á framkvæmdaráætlun.

 

Sem stendur er unnið við gatnamót Aðalstrætis og Hafnarstrætis. Gert er ráð fyrir að þau verði opnuð fyrir umferð um 5. ágúst, eða fyrr ef aðstæður leyfa. Að því loknu færist framkvæmdasvæðið að Fjarðargötu og er áætlað að þeirri vinnu ljúki tveimur dögum síðar.

Vegna framkvæmdanna geta orðið tímabundin þrýstingsföll á vatnskerfi Þingeyrar og einnig getur komið til tímabundinna vatnslokana við framkvæmdasvæðið á meðan unnið er við tengingar og breytingar á lögnum.

 

Þrátt fyrir þær tafir sem orðið hafa er gert ráð fyrir að umferð um Þingeyri verði komin í eðlilegt horf vel fyrir sólmyrkva þann 12. ágúst.

 

Framkvæmdirnar eru liður í undirbúningi fyrir fyrirhugaðar malbikunarframkvæmdir og er áætlað að malbikunarframkvæmdir hefjist innan Ísafjarðarbæjar 15. ágúst.

 

Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát á framkvæmdasvæðinu, fylgja merkingum og virða lokanir meðan á framkvæmdum stendur. Við þökkum íbúum, rekstraraðilum og öðrum vegfarendum fyrir þolinmæði og skilning á meðan unnið er að nauðsynlegum endurbótum á fráveitu- og veitukerfi sveitarfélagsins.