Svæðisskipulag Vestfjarða 2025-2050, tillaga samþykkt
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar samþykkti á fundi sínum tillögu svæðisskipulagsnefndar um Svæðisskipulag Vestfjarða 2025–2050, á grundvelli samþykktar 26. fundar Svæðisskipulagsnefndar Vestfjarða sem haldinn var 4. maí 2026. Þetta er hluti af lokaáfanga að verkefninu og þegar samþykki sveitar/ og bæjarstjórna liggur fyrir verður beiðni um staðfestingu send á Húsnæðis, mannvirkja og skipulagsstofnun.
Að sögn Sigríðar Júlíu Brynleifsdóttur bæjarstjóra var vinna við svæðisskipulagið samþykkt á Fjórðungsþingi Vestfjarða haustið 2022 og hófst formlega með fyrsta fundi svæðisskipulagsnefndar í október 2023, eftir að öll sveitarfélög höfðu tilnefnt nefndarmenn. Í byrjun árs 2024 var gengið frá samningi við VSÓ ráðgjöf í samstarfi við Urbana ehf. um verkefnið. „Sett var upp tímaplan sem hefur staðist og er það vel. Svæðisskipulag er sameiginleg stefna sveitarfélaganna á Vestfjörðum um byggðaþróun og þá þætti landnotkunar sem talin er þörf á að samræma vegna sameiginlegra hagsmuna hluteigandi sveitarfélaga. Það er ánægjulegt að þessu verkefni skuli vera lokið og vil ég þakka öllum þeim sem komu að þessu verkefni,“ segir Sigríður Júlía.
Nánar um svæðisskipulag Vestfjarða https://www.vestfirdir.is/is/verkefni/fv/svaedisskipulag