Sundhöll Ísafjarðar 80 ára

Þann 1. febrúar voru 80 ár liðin frá því að Sundhöll Ísafjarðar var vígð. Af því tilefni verður opið hús í sundhöllinni föstudaginn 20. mars kl. 14-18.

Gestum verður boðið að þiggja kaffi og kökur og skoða sundhöllina eftir endurbætur, en þeim er einmitt að ljúka og er stefnt að því að opna sundhöllina laugardaginn 21. mars, ef allt gengur samkvæmt áætlun.