Styrkveiting til Menningarmiðstöðvarinnar Edinborgar

Á fundi bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar var samþykktur viðauki nr. 8 við fjárhagsáætlun ársins 2026 vegna styrkveitingar til Menningarmiðstöðin Edinborg að fjárhæð 5,4 milljónir króna.

Viðaukinn hefur engin áhrif á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar. Rekstrarniðurstaða sveitasjóðs A-hluta helst óbreytt og nemur áfram 274,6 milljónum króna. Rekstrarniðurstaða samantekinna A- og B-hluta helst einnig óbreytt og nemur áfram 581,6 milljónum króna.

Að sögn Sigríðar Júlíu Brynleifsdóttur hefur aðdragandi að þessu verið nokkuð langur.  „Við erum vongóð um að vinna við þríhliðasamning við menningarmálaráðuneytið geti raungerst í framhaldinu nú þegar sveitarfélagið stígur inní með fjárframlagi til Edinborgarhúss. Menningarmálaráðuneytið gerði samkomulag til tveggja ára við Edinborgarhús vegna áranna 2025 og 2026 og því er komið að því að taka upp samtalið þar til að tryggja reksturinn enn frekar til framtíðar. Þá er mikilvægt að í samningi muni Edinborgarhús hafa ákveðnar skyldur gagnvart Ísafjarðarbæ sem yrðu orðaðar í samkomulagi þar um. Þessi vinna er bara rétt að hefjast núna og ný/r bæjarstjórn/bæjarstjóri tekur við boltanum."

Með samþykkt viðaukans er stigið mikilvægt skref í átt að áframhaldandi uppbyggingu og eflingu menningarstarfs í Edinborgarhúsinu og á svæðinu öllu.