Sólmyrkvagleraugu fyrir alla íbúa Ísafjarðarbæjar

Sigríður Júlía bæjarstjóri prófar sólmyrkvagleraugun.
Sigríður Júlía bæjarstjóri prófar sólmyrkvagleraugun.

Þann 12. ágúst 2026 verður almyrkvi á sólu, sem mun vara hvað lengst á Vestfjörðum. Til að tryggja að íbúar geti notið sólmyrkvans á öruggan hátt hefur Ísafjarðarbær keypt yfir 5.000 sólmyrkvagleraugu sem verður dreift þegar nær dregur.

Gleraugun uppfylla alla öryggisstaðla, en gríðarlega mikilvægt er að nota réttan öryggisbúnað þegar horft er á sólmyrkva, til að koma í veg fyrir augnskaða, sem í verstu tilfellum getur verið varanlegur.

Fleiri sveitarfélög á Vestfjörðum tóku þátt í pöntuninni, en alls voru keypt 10.000 gleraugu. Hugmyndin að verkefninu kom frá stjörnuáhugamanninum og Ísfirðingnum Diego Ragnari Angemi, sem á þakkir skildar fyrir að drífa það áfram. 

Þó enn séu tæplega 300 dagar í sólmyrkvann þykir rétt að láta íbúa vita nú þegar, til að þeir allra skipulögðustu fari ekki í óþarfa innkaup á gleraugum.