Skipulagslýsing: Endurskoðun á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar

Ísafjarðarbær óskar eftir athugasemdum vegna skipulagslýsingar endurskoðunar á Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar. Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar samþykkti 2. apríl síðastliðinn að heimila að skipulagslýsing fyrir endurskoðun á Aðalskipulagi verði kynnt opinberlega skv. Skipulagslögum 123/2010 og að lýsingin verði tekin til meðferðar í samræmi við VII. kafla skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagslýsingin verður til sýnis á bæjarskrifstofum Ísafjarðarbæjar Hafnarstræti 1 á Ísafirði og á heimasíðu Ísafjarðarbæjar frá og með 17. apríl 2020 til og með 11. maí 2020. Athugið að vegna skerts opnunartíma bæjarskrifstofu vegna COVID-19 er mælt með að hringja í 450 8000 til að bóka tíma ef óskað er eftir því að skoða gögnin á skrifstofunni.

Skipulagslýsing