Óskað eftir upplýsingum um eiganda fjár

Ísafjarðarbær óskar eftir upplýsingum um eiganda fjár.

Fjallskilanefnd Ísafjarðarbæjar óskar eftir upplýsingum um eiganda fjár sem fannst við Arnarnes / Birnustaði í Dýrafirði.

Um er að ræða tvær hvítar kollóttar ær með þremur lömbum, tvö hvít og eitt svart. Féð er ómarkað og ómerkt, án sjáanlegra eyrnamerkja, marka eða annarra auðkenna.

Féð er nú í vörslu og haldið aðskildu.

Sá sem telur sig eiga féð skal hafa samband við Bernharð Guðmundsson, formann fjallskilanefndar Ísafjarðarbæjar, í síma 848 6039, og leggja fram upplýsingar sem sýna fram á eignarrétt.

Frestur til að gefa sig fram er til kl. 16:00 föstudaginn 15. maí 2026.

Ef eigandi finnst ekki innan frestsins verður málið tekið til frekari afgreiðslu samkvæmt gildandi fjallskilareglum og lögum um afréttamálefni og fjallskil.

Nánari upplýsingar veitir formaður fjallskilanefndar Ísafjarðarbæjar.