Opið hús - Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2025–2050 - matjurtaræktun og matjurtagarðar
Vinna við Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2025-2050 er í fullum gangi og er stefnt er að því að leggja fram vinnslutillögu næsta haust. Einn þáttur í vinnu við aðalskipulag er að skilgreina landnotkun í þéttbýli.
Vegna þess er boðið til opins húss þar sem hægt er að ræða framtíðarstaðsetningu fyrir matjurtagarða innan þéttbýlis Ísafjarðar.
Markmið opna hússins er að fá hugmyndir og sjónarmið íbúa um hvar hentað geti að gera ráð fyrir matjurtagörðum til framtíðar og hvernig slíkt geti fallið að byggð og mannlífi ásamt því að auka sjálfbærni.
Gestir eru hvattir til að koma og taka þátt í umræðu um hentug ræktunarsvæði, miðla hugmyndum og staðkunnáttu og leggja grunn að stefnu um matjurtaræktun í Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2025-2050.
Opið hús verður þriðjudaginn 28. apríl kl. 16–18 í fundarsal á fjórðu hæð í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði.
Hvetjum öll til að mæta sem hafa áhuga á matjurtaræktun á Ísafirði.