Málefnasamningur leggur áherslu á skólamál og samgöngur

Málefnasamningur Framsóknar og óháðra og Viðreisnar var lagður fram á fyrsta bæjarstjórnarfundi kjörtímabilsins í gær. Af 34 atriðum eru skólamál og samgöngumál áberandi.

„Skólarnir og samgöngur, meðal annars almenningssamgöngur, voru kjósendum mjög hugleikin og við viljum endurspegla það í málefnasamningnum,“ segir Kristján Þór Kristjánsson oddviti Framsóknar og óháðra.

Í samningnum segir meðal annars að mönnun í leikskólum verði tekin til sérstakrar skoðunar til að tryggja samfellu frá lokum fæðingarorlofs til grunnskóla, efla menntun leikskólakennara og auðvelda atvinnuþátttöku. Þá verði húsnæði Grunnskólans á Ísafirði, Eyrarskjóls og Sólborgar stækkuð á kjörtímabilinu. Auk þess verða reglur mótaðar, í samráði við starfsfólk og ungmennaráð, um símanotkun í skólum. Almenningssamgöngur verða einnig endurskoðaðar með sérstaka áherslu á börn og ungmenni í smærri byggðakjörnum.

„Það var samhljómur um langflest mál milli okkar á meðan við vorum að skrifa þennan samning, og það var mjög ánægjulegt í umræðum á bæjarstjórnarfundi að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar virðast fylgjandi velflestum málunum þó þau hafi sínar áherslur í útfærslum. Samstarfið byrjar því vel,“ segir Gylfi Ólafsson nýr bæjarstjóri.

Málefnasamningur Framsóknar og óháðra og Viðreisnar 2026-2030