Lokanir vegna sprettgöngu Skíðavikunnar
Ísafjarðarbær vill vekja athygli íbúa og gesta á að í dag, þriðjudaginn 31. mars, er tímabundin lokun á umferð vegna undirbúnings og framkvæmdar Sprettgöngu Skíðavikunnar. Á lokunartíma verður snjó keyrt í götuna til að undirbúa sprettgönguna og stendur sú vinna yfir frá kl. 18:15–22:00 í kvöld. Götulokun í Hafnarstræti frá Hamraborg er frá 18:15 þriðjudaginn 31. mars fram yfir göngu miðvikudaginn 1. apríl.
þriðjudagur
-
Frá kl. 18:15 í dag, þriðjudaginn 31. mars, verður Hafnarstræti og Aðalstræti lokað fyrir umferð, frá Hamraborg að Heimabyggð.
-
Íbúar eru vinsamlegast beðnir um að leggja ekki í bílastæði við Hafnarstræti eftir kl. 18:00 í dag.
miðvikudagur eftir sprettgönguna
-
Hafnarstræti verður áfram lokað fram á miðvikudagskvöld 1. apríl.
-
Að lokinni sprettgöngu verður snjó ekið úr götunni og fer sú vinna fram í gegnum Austurveg og yfir í Fjarðarstræti.
Vegna mikillar umferðar vinnuvéla á svæðinu biður Ísafjarðarbær íbúa og gesti að gæta sérstaklega að börnum og tryggja að þau haldi sig fjarri vinnusvæðinu á meðan mokstur vegna sprettgöngu stendur yfir.
Ísafjarðarbær þakkar íbúum og öðrum fyrir gott viðmót á meðan á undirbúningi stendur og hvetur alla til að njóta þeirrar viðburða sem eru á Skíðavikunni.Þar má nefna að skráning í sprettgönguna er á eftirfarandi slóð: https://tinyurl.com/sprettganga og er skráningarfrestur til kl 11:00 samdægurs.