Lokað vegna flutninga
Nú er framkvæmdum að ljúka á fjórðu hæð í stjórnsýsluhúsinu því verður skrifstofa umhverfis- og eignasvið og skóla- og tómstundasvið lokuð þriðjudaginn 7. apríl vegna flutninga.
Þennan dag verður ekki hægt að veita móttöku á staðnum og gert er ráð fyrir að hefðbundin þjónusta hefjist á ný miðvikudaginn 8. apríl. Við biðjumst velvirðingar á mögulegum óþægindum og þökkum sýndan skilning á meðan flutningum stendur.
Minnum á að gott er að bóka viðtalstíma hjá umhverfis- og eignasviði. Hægt að bóka bæði stað- og fjarfund í gegnum bókunarvefinn og hægt að velja viðkomandi starfsmann eftir því hvert erindið er.
Viðtalstímar hjá starfsfólki Umhverfis- og eignasviðs eru í boði mánudaga–fimmtudaga kl. 13:00 og 15:00.
Með því að bóka tíma tryggja þjónustuþegar að hægt sé að veita þá þjónustu sem óskað er eftir á sem skilvirkastan hátt, þar sem starfsfólk getur þá undirbúið fundinn og tekið saman viðeigandi gögn.