Lokað fyrir vatn vegna tengivinnu: Suðureyri

Lokað verður fyrir vatnið á Hlíðarvegi og Hjallavegi á Suðureyri á morgun, fimmtudaginn 2. júlí, frá kl. 8:30 og fram eftir degi vegna tengivinnu við nýja vatnslögn.

Íbúar eru hvattir til að hafa nægilegt vatn tiltækt til neyslu og annarra nauðsynja meðan á framkvæmdum stendur.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem vatnslokunin kann að valda

 


 

SMS um vatnslokun hefur verið sent til íbúa í þessum götum í gegnum kerfi 1819.is. Skilaboðin sendast eingöngu til þeirra sem eru með skráð símanúmer og heimilisfang hjá 1819 og því þurfa þau sem óska eftir að fá send upplýsingaskeyti að sjá til þess að skráning sé til staðar.