Lóð á Hauganesi úthlutað til skipulagsgerðar og uppbyggingar
Á fundi bæjarstjórnar þann 7. maí síðastliðinn, var samþykkt að Fjallaból ehf. fái úthlutað landi á Hauganesi í Skutulsfirði til skipulagsgerðar og uppbyggingar lauga, hótels og heilsuræktarstöðvar, á grundvelli 6. gr. úthlutunarreglna Ísafjarðarbæjar.
Undanfarin ár hefur Fjallaból ehf. unnið að þróun verkefna í Ísafjarðarbæ, samhliða uppbyggingu félagsins á heilsárshúsum í Dagverðardal. Verkefnin byggja á þeirri reynslu sem þar hefur skapast og þeirri stefnu framkvæmdaaðila, að efla ferðaþjónustu á svæðinu á vandaðan og heildstæðan hátt. Það verkefni sem hvað lengst er komið í þróuninni er uppbygging laugar og heilsuræktar þar sem einnig er gert ráð fyrir hótelrekstri til þess að samnýta aðstöðuna.

Mynd frá M11 Arkitektar
Við mat á mögulegum staðsetningum kom svæðið við Hauganes fljótt fram sem ákjósanlegur kostur. Svæðið nýtur einstakrar staðsetningar með víðáttumiklu útsýni yfir Skutulsfjörð, sterkri tengingu við fjöru og náttúru, auk góðs aðgengis frá þjóðvegi. Svæðið tengist jafnframt vel við núverandi útivistar- og afþreyingarsvæði sem og göngu- og hjólaleið sem fyrirhugað er að leggja að Naustahvilft, sem eykur notkunarmöguleika fyrir bæði íbúa sveitarfélagsins og gesti. Staðsetningin býður upp á uppbyggingu sem fellur vel að landslagi og gefur jafnframt svigrúm til frekari þróunar til framtíðar.
Fyrirhuguð uppbygging felur í sér aðstöðu til heilsuræktar, hótel með um 50 herbergjum (með möguleika á allt að helmingsstækkun), veitingaaðstöðu og tengdum rekstri, ásamt laugum, sem nýtist bæði hótelgestum og almenningi. Laugarnar er hannaðar með það markmið, að skapa aðlaðandi og heilsueflandi upplifun í órjúfanlegum tengslum við náttúruna. Kjarninn er L-laga útilaug með stórbrotnu útsýni yfir fjörðinn og hönnun mun verða þannig að skjólgóð rými myndist innan útisvæðisins, en einnig er gert ráð fyrir yfirbyggðri laug (glerskála). Í glerskálanum geta gestir notið útsýnis við allar aðstæður í skjóli fyrir vindi og veðri. Glerskálinn tengist jafnframt gufuböðum og styrkir þannig heildarnýtingu svæðisins. Auk framangreinds er gert ráð fyrir heitum pottum og aðstöðu til sjóbaða auk léttrar göngubryggju til þess að þjónusta sjósundfólk, kajakræðara og eigendur lítilla seglbáta. Heilsuaðstaða er lykilþáttur í verkefninu og felur í sér líkamsrækt með sjálfstæðum rekstri sem tengist laugasvæðinu í gegnum sameiginlega búningsaðstöðu. Slík uppbygging styður daglega notkun svæðisins af hálfu íbúa og skapar stöðuga nýtingu allt árið um kring.
Markmið verkefnisins er að byggja upp öflugan áfangastað sem:
- styrkir ferðaþjónustu í Ísafjarðarbæ allt árið um kring
- skapar ný störf og eykur verðmætasköpun á svæðinu
- stuðlar að heilsutengdri upplifun með tengingu við náttúru á sjó og landi
- eykur afþreyingar- og þjónustumöguleika fyrir íbúa
Áhersla er lögð á vandaða hönnun og skipulag sem tekur mið af umhverfinu og lágmarkar rask á svæðinu. Sérstök áhersla er lögð á heilsutengda starfsemi, þar sem samspil lauga og heilsuræktar skapar grundvöll fyrir heilsársnotkun svæðisins.

Mynd frá M11 Arkitektar