Kynning skipulagslýsingar: Breyting á aðalskipulagi vegna Breiðadalslínu 1
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar samþykkti þann 19. febrúar 2026 að auglýsa skipulagslýsingu, skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna vinnu að undirbúningi fyrir hluta af Breiðadalslínu 1 í Dýrafirði, þ.e. um 4,23 km 132 kV loftlínu við sunnanverðan Dýrafjörð.
Lýsingin er dagsett 6. febrúar 2026 og er unnin af ráðgjöfum Verkís hf. fyrir Ísafjarðarbæ vegna framkvæmda Landsnets.
Skipulagsgerðin tekur til um um 4,3 km kafla Breiðadalslínu 1 og helgunarsvæðis hennar við sunnanverðan Dýrafjörð í Ísafjarðarbæ. Skipulagssvæðið er á láglendi í dreifbýli í innanverðum Dýrafirði, en fjörðurinn er þröngur og lítið undirlendi.
Skipulagssvæðið liggur um jarðirnar Kjaransstaði og Dranga sem er eyðibýli. Við bæinn á Kjaransstöðum eru tún en að öðru leyti fer framkvæmdin gegnum óræktað land.
Tilgangur skipulagsgerðarinnar er að skapa svigrúm í Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 fyrir lagningu Breiðadalslínu 1 við sunnanverðan Dýrafjörð, á kafla frá Dýrafjarðargöngum og vestur fyrir Kjaransstaði, að þeim stað sem línan liggur yfir Dýrafjörð. Markmiðið er að styrkja flutningskerfi raforku á Vestfjörðum og auka afhendingaröryggi í kerfinu. Markmiðið er einnig að lágmarka umhverfisáhrif af skipulagsbreytingunni og framkvæmdinni, svo sem af línunni sjálfri, vegagerð og efnistöku í tengslum við hana.
Framkvæmdin er tilkynningarskyld til Skipulagsstofnunar, í samræmi við tl. 13.02, í 1. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021, sem tekur til breytinga eða viðbóta á fyrirliggjandi framkvæmdum. Matsskyldufyrirspurnin verður unnin samhliða breytingu á aðalskipulaginu. Jafnframt verður unnið áhrifamat vatnshlota fyrir framkvæmdina. Aðalskipulagsbreytingin er unnin í samræmi við 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og í samræmi við 2. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.
Skipulagslýsingin er aðgengileg hér fyrir neðan og í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar, mál nr. 222/2026, frá 24. febrúar 2026 til og með 17. mars 2026.
Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillöguna á kynningartíma. Athugasemdum skal skilað í gegnum Skipulagsgáttina.
Frekari upplýsingar veitir Erla Margrét Gunnarsdóttir, skipulagsfulltrúi Ísafjarðarbæjar: skipulag@isafjordur.is.
Hvað er skipulagslýsing?
Í upphafi vinnu að skipulagi tekur skipulagsnefnd sveitarfélagsins saman lýsingu fyrir skipulagsverkefnið þar sem gerð er grein fyrir tildrögum skipulagsvinnunnar og hvernig fyrirhugað er að standa að skipulagsgerðinni. Lýsingin er þannig einskonar verkáætlun fyrir skipulagsgerðina.
Lýsingin er kynnt opinberlega og almenningur fær rödd í skipulagsvinnunni. Samtímis er leitað umsagnar Skipulagsstofnunar og annarra umsagnaraðila.
Helsta markmið skipulagslýsingar er að íbúar og aðrir hagsmunaaðilar fái tækifæri til að kynna sér áformin strax í upphafi og geti þannig komið á framfæri athugasemdum og ábendingum um nálgun við skipulagsgerðina, viðfangsefni hennar og helstu forsendur.
Allar þær ábendingar sem berast við lýsingu þessa verða þannig nýttar til að skilgreina verkefnið og ferli þess nánar, en einnig við greiningu og stefnumótun á síðari stigum vinnunnar. Þannig aukast líkur á því að skipulagstillagan byggi á sem breiðustum grunni og taki á þáttum sem mikilvægir eru og snerta framtíðarþróun hverfisins.