Kynning á matsáætlun vegna áforma um að reisa Botnsvirkjun í Dýrafirði

Botnsorka ehf. hefur lagt fram matsáætlun til Skipulagsstofnunar vegna umhverfismats Botnsvirkjunar í Dýrafirði.

Matsáætlunin er aðgengileg á Skipulagsgátt og þar er hægt að senda inn athugasemdir til og með 2. apríl 2026.

Botnsorka ehf., félag í eigu landeiganda jarðanna Botns og Dranga í Dýrafirði, áformar að reisa Botnsvirkjun í Dýrafjarðarbotni. Áætlað er að uppsett afl Botnsvirkjunar verði allt að 3 MW. Virkjunin verður rennslisvirkjun án miðlunarlóna og nýtir hluta vatns Botnsár og Drangaár til raforkuframleiðslu. Inntaksmannvirki verður staðsett í Botnsá í um 370 m hæð y.s. Þaðan liggur niðurgrafin þrýstipípa að stöðvarhúsi sem staðsett verður í sunnanverðum Botnsdal við skógræktarreit sem er í dalbotninum. Framleidd orka verður flutt um jarðstreng að Dýrafjarðargöngum og tengist þar dreifikerfi raforku.