Jólaopnun á Byggðasafninu

Opið verður á Byggðasafni Vestfjarða í Neðstakaupstað kl. 12-16 helgarnar 3.-4. desember og 10.-11. desember. Sérstök jólasýning hefur verið sett upp á safninu, auk þess sem fyllt hefur verið á safnbúðina með fallegum jólamunum í anda safnsins.

Heitt súkkulaði og smákökur gegn vægu gjaldi fyrir fullorðna og frítt fyrir börn.

Hópar geta haft samband við safnið á byggdasafn@isafjordur.is eða í síma 456 3291 til að bóka heimsóknir utan opnunartíma.