Íþróttamaður Ísafjarðarbæjar 2025: Tilnefningar
19.12.2025
Fréttir
Meistaraflokkur kvenna í knattspyrnudeild Vestra hlaut hvatningarverðlaun skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 2024.
Íþróttamaður Ísafjarðarbæjar 2025 verður útnefndur á veitingastaðnum Logni, á Hótel Ísafirði, sunnudaginn 11. janúar 2026 kl. 16. Viðburðurinn er öllum opinn og verða léttar veitingar í boði.
Hér eru tilnefningar í kjöri um íþróttamann og efnilegasta íþróttamann ársins 2025.
Íþróttamaður Ísafjarðarbæjar 2025 – tilefningar:
- Magnús Baldvin Birgisson – Körfuknattleiksdeild Vestra
- Bríet María Ásgrímsdóttir – Körfuknattleiksdeild Vestra
- Dagur Benediktsson – Skíðafélag Ísfirðinga, skíðaganga
- Elín Ólöf Sveinsdóttir – Knattspyrnudeild Vestra
- Fatai Gbadamosi – Knattspyrnudeild Vestra
- Karen Rós Valsdóttir – Skotíþróttafélag Ísafjarðarbæjar
- Kristjana Rögn Andersen - Skotíþróttafélag Ísafjarðarbæjar
- Hjálmar Helgi Jakobsson – Golfklúbbur Ísafjarðar
- Benedikt Stefánsson – Blakdeild Vestra
- Svanfríður Guðný Þorleifsdóttir – Blakdeild Vestra
Efnilegasti íþróttamaður Ísafjarðarbæjar 2025 – tilefningar:
- Dagný Emma Kristinsdóttir – Körfuknattleiksdeild Vestra
- Haukur Fjölnisson – Körfuknattleiksdeild Vestra
- María Sif Hlynsdóttir – Skíðafélag Ísfirðinga, skíðaganga
- Freyja Rún Atladóttir – Knattspyrnudeild Vestra
- Marinó Steinar Hagbarðsson – Knattspyrnudeild Vestra
- Bríet Emma Freysdóttir – Skíðafélag Ísfirðinga, alpagreinar
- Auður Alma Viktorsdóttir – Skotíþróttafélag Ísafjarðarbæjar
- Tómas Orri Baldursson – Golfklúbbur Ísafjarðar
- Marcin Anikiej – Blakdeild Vestra
- Helena Stefánsdóttir – Blakdeild Vestra