Ísafjörður: Lokað fyrir Tungulögnina miðvikudaginn 7. maí

Uppfært kl. 17:55:

Viðgerðarvinnan gengur illa og því má gera ráð fyrir að vatnslaust verði fram á kvöld, jafnvel fram undir miðnætti. 

Íbúar eru beðnir afsökunar á þessum óþægindum.

 

Lokað verður fyrir vatnið í Tungulögninni á Ísafirði nú þegar, kl. 10:10 miðvikudaginn 7. maí. Lokun gæti staðið yfir til milli kl. 17 og 19 í kvöld, þar sem fara þarf í umfangsmikla viðgerðarvinnu.

Lokunin nær yfir eftirfarandi götur:

Grænagarð
Seljalandsveg 78 og uppúr
Skógarbraut 3 og 3a
Skógarbraut Seljaland
Stakkanes 1-3
Tjaldsvæðið í Tungudal

SMS hefur verið sent til íbúa í gegnum kerfi 1819.is. Skilaboðin sendast eingöngu til þeirra sem eru með skráð símanúmer og heimilisfang hjá 1819 og því þurfa þau sem óska eftir að fá send upplýsingaskeyti að sjá til þess að skráning sé til staðar.

Til að skrá númer þarf að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum á 1819 og velja Mín skráning undir Minn aðgangur. Þar er hægt að setja inn eða uppfæra símanúmer og heimilisfang.