Ísafjarðarbær hlýtur 9 milljóna króna styrk til úttektar á netöryggi

Ísafjarðarbær hefur hlotið níu milljóna króna styrk til þess að gera ítarlega úttekt á netkerfum sveitarfélagsins, með áherslu á veikleikaskimun, öryggisgreiningu og fræðslu um netöryggi fyrir starfsfólk. Styrkurinn er netöryggisstyrkur frá Eyvöru NCC-IS, sjóði sem úthlutað er úr í samstarfi við Rannís.  

Markmiðið er að greina hugsanlegar öryggisógnir, efla innri þekkingu starfsmanna og auka vitund um mikilvægi netöryggis innan sveitarfélagsins. Niðurstöður úttektarinnar leggja grunn að bættri netöryggismenningu og öruggari stafrænum innviðum. Þannig er hægt að auka rekstraröryggi og bæta vernd persónuupplýsinga, ásamt því að vera betur undirbúin fyrir netárásum og gagnalekum.

Sérstök áhersla verður lögð á að vekja athygli íbúa á verkefninu með því að standa fyrir kynningarátaki, Netöryggisviku, þar sem haldnir verða fræðsluviðburðir fyrir almenning og starfsfólk sveitarfélagsins. Einnig verður netöryggisleiðbeiningum dreift á sýnilegan hátt á starfsstöðvum sveitarfélagsins og miðlar bæjarins nýttir til þess að efla vitund almennings um netöryggi. Þannig verður markvisst stuðlað að því að auka þekkingu og meðvitund íbúa um mikilvægi netöryggis í daglegu lífi.

Heildarkostnaður verkefnisins er áætlaður 10,8 m.kr., þar af nemur styrkur Eyvarar NCC-IS sem fyrr segir 9 m.kr. Mótframlag Ísafjarðarbæjar er fyrst og fremst vinnuframlag starfsfólks sveitarfélagsins eins og lýst er í verk- og kostnaðaráætlun verkefnisins.


Eyvör – National Coordination Centre Iceland (NCC-IS) er samstarfsvettvangur fræðslu, menntunar og rannsókna á sviði netöryggis á Íslandi. Markmið samstarfsins er að efla netöryggisgetu á landsvísu og styðja við íslenskt netöryggissamfélag sem og að tryggja öflugt Evrópusamstarf á sviði netöryggismála.