Ísafjarðarbær fær nýja vefslóð
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt breytingar á vefslóð sveitarfélagsins í samræmi við tillögu bæjarstjóra. Málið var tekið fyrir á fundi bæjarráðs 18. júní þar sem lagt var fram minnisblað um fyrirhugaðar breytingar á vefslóð bæjarins.
Markmið breytinganna er að einfalda aðgengi að upplýsingum og þjónustu sveitarfélagsins á netinu. Bæjarráð samþykkti tillöguna og fól bæjarstjóra að fylgja innleiðingu breytinganna eftir.
Því er lagt til samkvæmt minnisblaði bæjarstjóra að:
1. Tryggt sé að isafjardarbaer.is og ísafjarðarbær.is virki sem slóðir á vef sveitarfélagsins.
2. Þar sem vefslóð sveitarfélagsins er prentuð eða auglýst sé hún skrifuð
www.ísafjarðarbær.is, en isafjardarbaer.is í efni sem ætlað er að hluta eða öllu
leyti erlendum íbúum eða gestum.
3. Opnað verði fyrir áframsendingu frá @isafjardarbaer.is í @isafjordur.is.
Netföng verði birt í undirskriftum, nafnspjöldum og öðru sem
@isafjardarbaer.is.
4. Til að tryggja áreiðanleika kerfa og samtenginga þeirra verði ekki horfið frá því
að tæknilega komi tölvupóstur frá @isafjordur.is netföngum og notendanöfn
starfsmanna verði @isafjordur.is
3. Vefslóðir á þjónustuvefi eða aðrir staðir þar sem nafn bæjarins kemur fram,
bjóði upp á báðar útgáfur þar sem því er við komið, og isafjardarbaer verði sú
útgáfa sem er auglýst. Þjónustuvefir fyrir almenna íbúa verði í forgangi fram yfir
vefi og kerfi sem eingöngu eru ætluð starfsmönnum
Nánari upplýsingar um framkvæmd breytinganna og hvenær ný vefslóð tekur gildi verða kynntar þegar vinnu við verkefnið vindur fram.