Hraðhleðslustöðvar: Umsóknir óskast um afnot bílastæða
Ísafjarðarbær óskar eftir umsóknum um afnot af bílastæðum á Ísafirði, til uppsetningar og reksturs hraðhleðslustöðva fyrir rafbíla.
Staðsetningarnar eru þrjár:
- Við Neista, út frá Pólgötu
- Við Edinborgarhúsið, inn af Pollgötu
- Í Neðstakaupstað, við Ásgeirsgötu 1A
Mynd af korti yfir staðsetningarnar er í fullri upplausn neðst í þessari frétt.
Markmiðið er að efla þjónustu og styðja við orkuskipti með því að tryggja aðgengi að öruggum og öflugum hleðslulausnum.
Samningar verða gerðir til 15 ára.
Umsóknir og málsmeðferð
Umsækjendur skulu skila inn umsóknum sem innihalda:
- Upplýsingar um umsækjanda.
- Lýsingu á fyrirhuguðum búnaði, afköstum og þjónustu.
- Tímaáætlun um framkvæmd og uppsetningu.
- Upplýsingar um rekstrarhæfi eða reynslu.
- Val á staðsetningu.
Umsóknarfrestur er tvær vikur frá birtingu auglýsingarinnar eða þriðjudaginn 10. mars 2026. Umsóknir sem berast eftir að frestur er útrunninn verða ekki teknar til meðferðar.
Berist fleiri en ein umsókn um sömu staðsetningu mun hlutkesti ráða úthlutun á næsta fundi skipulags- og mannvirkjanefndar. Að því loknu mun skipulagsfulltrúi hafa samband við valda umsækjendur og hefja undirbúning samningsgerðar með það að markmiði að hraðhleðslustöðvar geti risið í nánustu framtíð.
Skilyrði fyrir afnotum og framkvæmdum
Eftirfarandi skilyrði gilda fyrir afnot og uppsetningu:
- Framkvæmdir skulu hefjast innan 6 mánaða frá úthlutun.
- Umsækjandi skal með fasta búsetu eða starfsstöð innan EES.
- Umsækjandi má ekki vera í vanskilum við Ísafjarðarbæ eða stofnanir sveitarfélagsins.
- Óheimilt er að framselja réttindi sem tengjast afnotunum nema með sérstöku samþykki sveitarfélagsins.
- Sveitarfélagið getur óskað eftir frekari upplýsingum um fjárhagsstöðu eða fyrri verkefni.
- Umsækjandi skal geta sýnt fram á reynslu af sambærilegum verkum.
Kostnaður, viðhald og ábyrgð
Aðili sem fær afnot ber fulla ábyrgð á öllum framkvæmdum og rekstri á svæðinu. Það felur í sér:
- Allan kostnað vegna uppsetningar, merkinga og tengdra framkvæmda.
- Allan kostnað vegna reglubundins viðhalds, snjómoksturs, bilana og endurnýjunar búnaðar.
- Ábyrgð á að búnaður og mannvirki uppfylli gæðakröfur, öryggiskröfur og aðrar almennar reglur á samningstímanum.
Sveitarfélagið áskilur sér rétt til að afturkalla afnot ef skilyrði eru ekki uppfyllt eða ef framkvæmdir hefjast ekki innan tilskilins frests. Slík afturköllun fer fram skriflega.
Innsending umsókna og fyrirspurnir
Umsóknir skulu berast til skipulagsfulltrúa, Erlu Margrétar Gunnarsdóttur, erla@isafjordur.is.
