Helga Sigfríður Snorradóttir ráðin sem kennsluráðgjafi á skóla- og tómstundasviði Ísafjarðarbæjar

Helga S. Snorradóttir hefur verið ráðin sem kennsluráðgjafi á skóla- og tómstundasviði Ísafjarðarbæjar og mun hefja störf þann 4. ágúst næstkomandi.

Helga lauk námi frá Kennaraháskóla Íslands árið 2005 með B.Ed. gráðu í grunnskólakennarafræði og öðlaðist í kjölfarið leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari. Hún lauk viðbótardiplóma í farsæld barna af félagsvísindasviði Háskóla Íslands árið 2024 og í uppeldis- og menntunarfræðum af menntavísindasviði frá sama skóla árið 2025. Þá lauk hún viðbótarnámi í íslensku við menntavísindasvið Háskóla Íslands árið 2010.

Helga er ekki ókunnug störfum hjá Ísafjarðarbæ, en frá ágústmánuði 2016 til dagsins í dag hefur hún starfað sem aðstoðarskólastjóri í Grunnskólanum á Ísafirði og þar áður frá 2002 sem umsjónarkennari við sama skóla.

Við bjóðum Helgu hjartanlega velkomna til áframhaldandi starfa hjá Ísafjarðarbæ í nýju hlutverki.