Gylfi Ólafsson tekur við bæjarstjóralyklunum
05.06.2026
Fréttir
Gylfi Ólafsson tók í morgun við lyklavöldum að bæjarstjórnarskrifstofu Ísafjarðarbæjar af Sigríði Júlíu Brynleifsdóttur. Á fyrsta bæjarstjórnarfundi eftir kosningar, fimmtudaginn 4. júní, var ráðningarsamningur hans samþykktur, en tilkynnt var í síðustu viku um meirihlutasamstarf Framsóknar og óháðra og Viðreisnar.
„Ég vil þakka þér kærlega fyrir ánægjulegt samstarf. Ég tek við góðu búi og vonast til þess að geta fengið að njóta ráðlegginga þinna áfram. Ég hlakka til að vinna fyrir íbúana og samfélagið mitt,“ sagði Gylfi.
„Ég óska Gylfa og nýrri bæjarstjórn velfarnaðar á kjörtímabilinu“ sagði Sigríður þegar hún afhenti aðgangskort að Stjórnsýsluhúsinu.