Guðný Stefanía Stefánsdóttir ráðin aðstoðarskólastjóri Grunnskólans á Ísafirði
Guðný Stefanía Stefánsdóttir hefur verið ráðin sem aðstoðarskólastjóri við Grunnskólann á Ísafirði og mun hefja störf sem slíkur þann 1. ágúst næstkomandi.
Guðný lauk BS námi í íþróttafræði við Háskóla Íslands árið 2002 og hlaut í kjölfarið starfsleyfi sem grunn- og framhaldsskólakennari. Hún er sem stendur að ljúka diplómanámi í stjórnun og forystu í lærdómssamfélagi við Háskólann á Akureyri.
Guðný er síður en svo ókunn störfum hjá Grunnskólanum á Ísafirði, þar sem hún hefur starfað þar sem íþróttakennari og umsjónarkennari frá árinu 2002, auk þess sem hún leysti Helgu S. Snorradóttur fráfarandi aðstoðarskólastjóra af skólaárið 2024 til 2025.
Við bjóðum Guðnýju Stefaníu hjartanlega velkomna til áframhaldandi starfa við Grunnskólann á Ísafirði.