Framkvæmdir í Bæjarbrekku
07.07.2026
Fréttir
Í dag hefjast framkvæmdir við viðgerð á vatnslögn í Bæjarbrekku. Gert er ráð fyrir að vinnan standi yfir í dag og eitthvað frameftir morgundeginum.
Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát þegar ekið er um svæðið, fylgja umferðarmerkingum og virða leiðbeiningar starfsfólks á framkvæmdasvæðinu.
Að framkvæmdum loknum verður malbikað þegar að malbikunarvélar koma í bæinn. Því eru vegfarendur beðnir um að aka áfram með aðgát um svæðið þar til endanlegu frágangi er lokið.
Ísafjarðarbær biður vegfarendur velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og þakkar fyrir sýndan skilning.