Forgangsorka keypt fyrir sundlaugina á Þingeyri

Bæjarráð samþykkti á 1184. fundi sínum þann 24. janúar sl. að kaupa forgangsorku fyrir sundlaugina á Þingeyri. 

Í minnisblaði sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs Ísafjarðarbæjar kemur fram að Ísafjarðarbær er með samning við Orkubú Vestfjarða um raforkukaup fyrir sundlaugina á Þingeyri sem síðast var endurnýjaður 12. desember 2013. Um er að ræða ótrygga raforku sem keypt er í gegnum Landsvirkjun og er ódýrari per kWh en ef orkan væri keypt á almennum markaði. Við endurnýjun samningsins árið 2013 var gerð sú breyting á kjörum orkunnar frá Landsvirkjun að heimilt er að skerða orkuafhendingu um allt að 120 daga á ári.

Þann 10. janúar sl. sendi Landsvirkjun Orkubúi Vestfjarða tilkynningu um að vatnsstaðan í miðlunarlónum Landsvirkjunar væri langt undir meðallagi vegna mikillar þurrkatíðar og lítils innrennslis. Mun því Landsvirkjun þurfa skerða afgangsorku til stórnotenda og á skerðingin að hefjast um komandi mánaðarmót. Þessi skerðing mun hafa þau áhrif á Ísafjarðarbæ að ekki verður hægt að fá heitt vatn í sundlaugina á Þingeyri. Ekki er ljóst hversu lengi þessi skerðing varir, en eins og áður kom fram hefur Landsvirkjun heimild til að skerða orkuna í allt að 120 daga.

Samkvæmt minnisblaði eru tveir kostir eru í stöðunni; að una þessari skerðingu, loka sundlauginni á Þingeyri á meðan og bíða eftir að henni ljúki, eða segja upp samningnum við Orkubú Vestfjarða og kaupa orku á almennum markaði. Ljóst er að seinni kosturinn hefur í för með sér kostnaðarhækkun fyrir Ísafjarðarbæ. Á sl. 18 mánuðum, frá júlí 2020 til desember 2021, hefur Ísafjarðarbær greitt samtals kr. 13.598.929 fyrir ótryggu raforkuna fyrir sundlaugina á Þingeyri, að meðaltali kr. 755.496 á mánuði. Ef reikningar frá Orkubúi Vestfjarða sl. 18 mánaða eru skoðaðir út frá samningsverði Orku Náttúrunnar hefði Ísafjarðarbær greitt kr. 17.989.984 eða kr. 999.444 á mánuði. Með því að segja upp samningnum við Orkubú Vestfjarða, um kaup á ótryggu raforkunni, og kaupa orkuna á almennum markaði myndi orkukostnaðurinn fyrir sundlaugina á Þingeyri hækka um kr. 250.000 á mánuði eða um kr. 3.000.000 á ári. Miðast þessar upphæðir við verð og forsendur sl. 18 mánaða. 

Sem fyrr segir samþykkti bæjarráð að velja seinni kostinn og kaupa forgangsorku fyrir sundlaugina á Þingeyri til að koma í veg fyrir að henni verði tímabundið lokað. Bæjarráð fól einnig bæjarstjóra að flýta skoðun á orkusparandi aðgerðum fyrir sundlaugina á Þingeyri.