Fimm framboðslistar í sveitarstjórnarkosningum 16. maí 2026
13.04.2026
Fréttir
Í dag, mánudaginn 13. apríl klukkan 12 á hádegi, kom yfirkjörstjórn Ísafjarðarbæjar saman til fundar í fundarsal bæjarstjórnar og úrskurðaði eftirfarandi framboðslista til sveitarstjórnarkosninga gilda:
B-listi Framsóknarflokks og óháðra
C-listi Viðreisnar
D-listi Sjálfstæðisflokksins
M-listi Miðflokksins
S-listi Samfylkingarinnar
Alls verða því fimm framboðslistar á kjörseðlum íbúa Ísafjarðarbæjar þann 16. maí næstkomandi.