Dagbók bæjarstjóra: Vika 66
Dagbók bæjarstjóra dagana 6.-12.apríl 2026, í 66. viku í starfi.
Stutt vika, vikan eftir páska þegar allir eru að jafna sig eftir vel heppnaða páska fyrir vestan.
Í síðustu dagbók sagði ég ykkur frá því að ég væri á leiðinni suður í fermingu systursonar míns. Keyrðum á páskadag, ferming á mánudegi, keyrðum áleiðis heim eftir veislu en tryggðum okkur gistingu í Bjarkalundi þar sem allt var orðið ófært. Þriðjudagurinn var ódrjúgur þar sem það tók lengri tíma en við gerðum ráð fyrir að komast vestur vegna ófærðar og að það tók langan tíma að moka Dynsuna.

Hótel Bjarkalundur fór vel með okkur þegar við vorum á heimleið úr fermingarveislu í byrjun vikunnar.
„Fjórða hæðin“ (umhverfis-og eignasvið og skóla- og tómstundasvið) flutti aftur á sinn stað í vikunni og þar með erum við öll komin undir sama þak í stjórnsýsluhúsinu.

Á fjórðu hæðinni er svona næðisrými (sorry Margrét, ég bara varð að birta þessa mynd )

Helga, Erla og Halla á umhverfis- og eignasviði eru að koma sér fyrir í lagfærðu vinnurými.
Nefnd um framtíðarhúsnæði leik- og grunnskóla í Skutulsfirði fundaði í vikunni og verður skýrsla þeirrar nefndar send til bæjarstjórnar, ásamt tillögu nefndar. Þá voru ferla-fundir með ferla-Magnúsi á miðviku- og fimmtudag með starfsfólki og gengur sú vinna vel. Þá átti bæjarráð sinn vikuleg fund í vikunni.

Patrik Björck, Steinunn Einars, Hanna Gunnarsson og Gylfi Ólafs. Patrik og Hanna eru þingmenn á sænska þinginu og hittu Steinunni og Gylfa í vikunni.
Tvennu gat ég ekki sinnt í vikunni. Það var annarsvegar að hitta tvo sænska þingmenn sem voru á ferðinni hér á föstudag en Gylfi Ólafs og Steinunn Einars hittu þau og var ýmislegt rætt en þó sérstaklega varnarmálaskýrsla Vestfjarðastofu. Hitt var að um helgina var unglingameistaramót í alpagreinum á skíðasvæðinu og mér var boðið í „heimsókn“.

Lagt af stað í ferðalag.

Lagt af stað! Við Dúi, Hilmar hafnarstjóri í Ísafjarðarbæ og Sigga konan hans og við hlið mér er Hafsteinn hafnarstjóri á Grundarfirði.
Ástæðan fyrir því að ég komst ekki á þennan fund og vera viðstödd þetta mót er að ég lagði land undir fót og þegar þetta er skrifað er ég mætt til Miami á Florida til að taka þátt í Seatrade Cruise Global 2026 sem er stærsti fundur skemmtiferðaskipaiðnaðarins, þar sem saman koma skipafélög, birgjar, fulltrúar áfangastaða (hafnanna) og áhrifafólk sem tengist þessum iðnaði og mótar framtíð skemmtiferða af þessu tagi. Þetta er viðburður þar sem tengsl og samvinna eru efld. Við erum nokkuð stór hópur frá Íslandi þar á meðal erum við tvær bæjarstýrur sem tökum þátt (ég og Dagmar frá Múlaþingi). Svo eru hafnarstjórar ,starfsfólk ferðaskrifstofa og Cruise Iceland svo eitthvað sé nefnt. Semsagt spennandi vika framundan en dagurinn í dag var nýttur til að kanna umhverfið.
Útilistaverk rétt hjá hótelinu okkar á Miami.
Miami Beach.

Skemmtilegt listaverk á Miami.
Miami Board Walk - við örkuðum þetta í dag, 5 km norður og 2 km suður.... en þetta eru ca 20 kílómetrar meðfram ströndinni á Miami Beach sem eru svona.
Í göngutúr dagsins við einn af kanölum hér á svæðinu.