Dagbók bæjarstjóra 2026: Vika 69

Í fyrsta sinn í mjög langan tíma þá náði ég að hlaupa 100 km á einum mánuði. Hundraðasti kílómeter a…
Í fyrsta sinn í mjög langan tíma þá náði ég að hlaupa 100 km á einum mánuði. Hundraðasti kílómeter aprílmánaðar kom í hús í Hnífsdal.

Ársfundur Brákar leigufélags, bætt skilvirkni í Ísafjarðarbæ, undirbúningur og lokafrágangur margra mála fyrir bæjarráð vikunnar, framboð og efling leikskólakennaranáms, aðgengi. Sem sagt allskonar verkefni og fundir og aðstoð við íbúa er varðar ýmis mál voru á verkefnaborði bæjarstjóra þessa vikuna.
Ég skrapp á Þingeyri í vikunni að kíkja á félagsheimilið en unnið hefur verið að endurbótum þar síðustu mánuði. Í vetur hafa framkvæmdir og endurbætur haldið áfram síðan gólfplata var steypt síðastliðið vor. Útveggur á senu var klæddur til að fyrirbyggja viðvarandi leka sem skemmdi klæðningu í kringum senuna. Þá var einnig skipt um rennur á húsinu og settar snjógildrur. Öllum gluggum, 11 talsins var skipt út. Í janúar komu opnanlegu fögin og frágangi við glugga lauk. Veggir og loft voru máluð og harðviðarparket lagt á salinn og sviðið. Nokkrir lausir endar eru enn í vinnslu.
Við værum ekki á þessum stað í dag með félagsheimilið ef ekki hefði komið til höfðinglegur stuðningur Eiríks Eiríkssonar á Felli og færum við honum okkar bestu þakkir fyrir. Þetta hefði ekki gengið svona hratt og vel nema fyrir tilstuðlan Eiríks. Ég vil þakka þeim sem hafa komið að og haldið utan um þetta verkefni.

Félagsheimilið á Þingeyri.

Dagbjartur í Bryggjustöðinni á Þingeyri.

Á Bryggjustöðinni á Þingeyri.

Úr því ég var stödd á Þingeyri þá kom ég að sjálfsögðu við í sjoppunni, þar var margt um manninn og augljóst að þetta er ekki bara sjoppa, þetta er staðurinn þar sem fólk hittist til að ræða landsins gagn og nauðsynjar. Það er öllum byggðalögum mikilvægt að þar sé starfrækt einhverslags þjónusta eins og búð eða sjoppa en það er ekki sjálfgefið því það er þungur rekstur og því íbúanna að sýna því skilning og samstöðu.

1.maí var mjög annasamur dagur. Hann byrjaði með því að ég mætti á opnun sýningar í Krambúðinni á Byggðasafni Vestfjarða í Neðstakaupstað sem fjallar um Guðrúnu Vigfúsdóttur vefara og Húsmæðraskólann Ósk á Ísafirði. Við opnunina hélt ég ræðu þar sem ég stiklaði á stóru um ævi og störf Guðrúnar, Kvenfélagið Ósk og störf kvenfélagana og þýðingu þeirra fyrir samfélagið. Ég hef nú þegar sent ræðuna til birtingar á BB, vonandi að hún komi inn í kvöld eða morgun. Það var vel mætt á þessa opnun og gaman að spjalla við fólk sem þekkti vel til sögunnar.

 Við opnun sýningarinnar í Krambúðinni.

Við opnun sýningarinnar í Krambúðinni.

Á skólaslitunum í Lýðskólanum hitti ég gamla æskuvinkonu, Laufey, hún er úr Fnjóskadalnum en býr nú austur á landi, dóttir hennar, Mörk, var að útskrifast.

Magga Gauja (í bláa kjólnum), skólastjóri Lýðskólans talar til útskriftarnema, falleg stund.

 

Þá voru skólaslit Lýðskólans á Flateyri. Þau fóru fram í kirkjunni á Flateyri og þar voru mættir nemendur, aðstandendur, kennarar, íbúar Flateyrar og fleiri gestir. Það er alltaf mjög tilfinningaþrungið andrúmsloft á tímamótum sem þessum. Það er eitthvað svo notalegt að sjá breytinguna sem hefur orðið á nemendahópnum frá því maður mætti á skólasetninguna í haust og sjá hvernig yfirbragðið er núna að vori. Það er eins og þau hafi náð einhverjum óútskýranlegum fókus á lífið með nýja reynslu í farteskinu. Á Flateyri hafa þau haft rými til að þroskast og eflast sem einstaklingar.
Eftir skólaslitin fórum við á 1.maí kaffisamsæti á Suðureyri og þar svignuðu borðin undan kræsingum sem kvenfélagskonur höfðu reitt fram. Ræðuhöld og tónlistaratriði voru einnig í boði, allt samkvæmt hefðinni en á Suðureyri er hefðin að byrja á kröfugöngu, þá keppa skólabörn í boðsundi og eftir það er kaffisamsætið. Svona hefur þetta verið í áratugi en hún Lilja Rafney hefur alltaf séð um skipulagningu á þessum viðburði, hún sagði mér síðastliðin 40 ár eða svo.

Við Lilja Rafney á 1.maí hátíðarhöldum á Suðureyri.

Skellti í eina brauðtertu fyrir 1.maí kaffið.
Það versta við brauðtertur er að maður gerir þær svo sjaldan að maður nær ekki upp almennilegri færni í að skreyta þær!

Hlaðvarpskonurnar í "Komið gott", voru alveg búnar að vinna heimavinnuna sína og voru ágætlega inní málum.

 

Ég var í þessum líka fína félagsskap á föstudagskvöldið. Náði ekki að taka mynd af öllum hópnum, borðið langt og svona...

Þær byggðu brýr þær Hafdís Gunnars og Sigga Gísla sem fengu að ræða málin á Logni á föstudagskvöld.

 

Um kvöldið fór ég svo í skemmtilegt kvennaboð, út að borða og svo upplifði ég í fyrsta sinn að fara á hlaðvarp, mjög spes, ég vissi ekki að fólk færi í alvöru að horfa á útvarpsþátt. Nýtt fyrir mér (gömlunni) en ég verð að segja að mér fannst þetta mjög skemmtilegt. Þetta voru þær Ólöf Skaftadóttir og Kristín Gunnarsdóttir í „Komið gott“.

Dúi minn hélt fróðlegt erindi á opnu húsi Frímúrara.

Ég kíkti á opið hús hjá Frímúrarareglunni Njálu, þar var ágætis mæting og ýmsir komu sem hafa beðið lengi eftir að fá að berja augum 1.gráðu stúkuna en hægt var að horfa inn í hana og sjá stjörnuhiminninn.

Skúli Berg, stólmeistari Frímúrarastúkunnar Njálu á Ísafirði, hélt smá erindi á opnu húsi.

Guðrún Hrafnhildur á kveðjutónleikunum sínum.

Guðrún Hrafnhildur, alsæl eftir ríflega klukkustundartónleika.

 

Þessi helgi bauð svo uppá tvenna tónleika í Hömrum, sal Tónlistarskólans. Fyrri tónleikarnir voru á laugardaginn þar sem Matilda Mäekalle hélt burtfarartónleika en hún stefnir á að fara til náms í Listaháskólanum næsta haust. Hún bauð uppá fjölmörg píanóverk, spilaði fjórhent og átthent, spilaði undir fyrir pabba sinn en hann var á klarinetti, þá tóku þau einn saxófóndúett. Virkilega hátíðlegir og fallegir tónleikar.

Á kveðjutónleikum Guðrúnar

Matilda Måekalle með foreldrum sínum eftir stórkostlega burtfarartónleika.

 

Í dag var svo yngsta barnið hans Dúa, stjúpdóttirin, hún Guðrún Hrafnhildur með kveðjutónleika en hún er að sækja um í Menntaskólanum í tónlist en þangað stefnir hún í haust. Guðrún bauð sömuleiðis uppá fjölmörg píanóverk, spilaði fjórhent og átthent, hún spilaði á þverflautu, söng og þá spilaði hún einnig undir einsöngslag sem pabbi hennar söng. Þetta voru mjög metnaðarfullir tónleikar hjá okkar konu, heill klukkutími af efni.
Það sem er svo fallegt við þetta allt er að þær Guðrún og Matilda hafa spilað saman í gegnum árið og með þeim er einlæg vinátta og þær eiga, án efa, eftir að vinna saman í framtíðinni.

Hér á Suðureyri hafa menn og konur verið að sjósetja bátana undanfarið, í nýrri viku hefjast strandveiðarnar.

Þeim hefur fjölgað bátunum í höfninni á Suðureyri, strandveiðarnar hefjast í komandi viku.