Dagbók bæjarstjóra 2026: Vika 67

Ég og Hilmar hafnarstjóri Ísafjarðarbæjar mætt í Cruise Europe móttöku.
Ég og Hilmar hafnarstjóri Ísafjarðarbæjar mætt í Cruise Europe móttöku.

Þessa viku var ég á Seatrade Cruise Global 2026 í Miami á Flórída í Bandaríkjunum.
Seatrade Cruise Global 2026 er ein af stærstu og mikilvægustu viðburðum heims í skemmtiferðaskipaiðnaðinum. Viðburðurinn er alþjóðleg ráðstefna og sýning þar sem skipafélög, hafnir og áfangastaðir, tæknifyrirtæki og birgjar, fjárfestar og sérfræðingar koma saman til að deila þekkingu, mynda tengsl og kynna nýjungar í greininni. Þessi viðburður er oft kallaður stærsti „B2B“ viðburður heims fyrir skemmtiferðaskipaiðnaðinn. Þetta er ekki „almenn ráðstefna“ heldur mjög alþjóðlegur viðburður, þéttur af ákvörðunaraðilum (executives, route planners o.fl.) og staður þar sem stórir samningar og samstarf verða til.

 

 

Það voru allskonar básar með afþreyingu fyrir skemmtiferðaskip, t.d. þarna var karokee, Völu frá Vesturbyggð til mikillar gleði.

Frá sýningunni Seatrade Cruise Global 2026.

Skemmtilegt að eiga eina mynd af sér með vængi.

Ein hjónamynd í Versace palace.

Seatrade Cruise Global skiptir okkur á Íslandi mjög miklu máli því þetta er lykilvettvangur fyrir viðskipti og samstarf þar sem nýjar hugmyndir og lausnir eru kynntar sem eru mikilvægar fyrir þróun ferðamennsku og hafna um allan heim. Þátttakan hefur áhrif á komur skemmtiferðaskipa, þróun hafna hér á landi og ferðamannastraum.
Fyrir mig fannst mér skipta máli að sjá með eigin augum hvað þessi bransi er ótrúlega stór. Það að láta sjá sig, minna á sig, mynda ný tengsl og síðast en ekki síst að viðhalda þeim tengslum sem fyrir eru.

Fleiri listaverk....

 

Síðasta kvöldið fórum við nokkur út að borða á Versace palace. Frábær staður og umgjörðin mögnuð.

Enn eitt útilistaverkið.

 

Frá sýningunni Seatrade Cruise Global 2026.

 

 

Við vorum nokkuð mörg mætt þarna frá Íslandi, fulltrúar hafna víðsvegar af landinu, ferðaskrifstofur, umboðsskrifstofur, skipamiðlarar og aðrir þjónustuaðilar. Íslandsstofa og Cruise Iceland gegndu lykilhlutverki á sýningunni og héldu utan um íslenska básinn. Á sýningunni voru yfir 650 sýningarbásar, yfir 85 skemmtiferðaskipafyrirtæki og 125 lönd með kynningarbása og mér skilst að yfir 12.500 manns hafi sótt sýninguna. Á heimasíðu Seatrade er fullyrt að viðburðurinn hafi verið sá stærsti í 41 árs sögu hans.

Íslenski básinn á sýningunni Seatrade Cruise Global 2026.

Íslenski básinn á Seatrade Cruise Global 2026.
 

Íslenski hópurinn er hér samankominn en hann átti góðan morgunverðarfund í upphafi sýningarinnar.
Frá sýningunni Seatrade Cruise Global 2026.

Íslensku konurnar á Seatrade Cruise Global 2026.

Frá sýningunni Seatrade Cruise Global 2026. 

 

Við á íslenska básnum vorum sátt, við fundum fyrir miklum velvilja og jákvæðni í okkar garð og andrúmsloftið var allt annað en það var fyrir ári síðan þegar það var bókstaflega allt brjálað út af innviðagjaldinu.
Þá verð ég að segja að það er ómetanlegt að kynnast og viðhalda tengslum við íslenska hópinn sem var mjög samheldinn og flottur. Takk fyrir frábæra samveru og samvinnu!

Á meðan ég var í burtu var ýmislegt um að vera sem ég missti af. Fyrir það fyrsta þá var Fossavatnsgangan í gær og allir hliðarviðburðir hennar að auki en þetta hófst allt með næturfossavatninu á miðvikudagskvöld. Aldeilis heppilegt að í ár var snjór og gott veður.
Þá var "ársfundadagur" hjá Vestfjarðastofu og Fjórðungssambandi Vestfirðinga á miðvikudaginn en þann dag var einnig auka Fjórðungsþing Vestfirðinga, Ársfundur fulltrúaráðs Vestfjarðastofu og vinnustofa um stefnu Vestfjarðastofu 2027-2036.
Á þriðjudag var fundur undir heitinu „Velferð og vá“ en fundurinn sneri að hlutdeild félagsþjónustu sveitarfélaga í skipulagi almannavarna. Á fundinum komu saman fulltrúar félagsþjónustu, lögreglu og sveitarfélaga á Vestfjörðum til að ræða niðurstöður rannsóknar og miðla reynslu af viðbrögðum við samfélagslegum áföllum. Fundurinn gekk afar vel. Mætingin ágæt. Fulltrúar af næstum öllum svæðum á Vestfjörðum. Skýrslan sem kynnt var hristi svolítið upp í fólki á þann veg að félagsþjónustunnar er varla getið í almannavarnarlögum og er ekki í viðbragðshópum eða aðgerðarstjórnum. Að auki er ekkert talað um beint hlutverk félagsþjónustunnar á hættutímum í félagsþjónustulögunum. Það er eitthvað sem gengur ekki lengur. Það þarf að ýta við löggjafanum varðandi þetta. Það þarf að skilgreina og ramma inn hlutverk félagsþjónustunnar í þessu samhengi.Gylfi fór fyrir hönd Ísafjarðarbæjar á fund atvinnuveganefndar Alþingis til að fylgja eftir umsögn Ísafjarðarbæjar um lagareldið sem við skiluðum inn. Þá missti ég af vikulegum bæjarráðsfundi og einnig var fundur í bæjarstjórn, sá næstsíðasti á þessu kjörtímabili. Það eru innan við fjórar vikur í kosningar, fimm framboð sem bjóða fram í Ísafjarðarbæ. Það verður spennandi að fylgjast með kosningabaráttunni sem verður þá líklega stutt og snörp. Þetta kjörtímabil er búið að líða ótrúlega hratt!

Það var léttir í vikunni þegar það var tilkynnt að Vegagerðin og Icelandair hafi náð að semja um flug til Ísafjarðar. Samningurinn gildir til fjögurra ára. Lágmarksfjöldi ferða er 452 hringferðir á ári. Þetta er um 28,5% fækkun ferða miðað við það sem gert var ráð fyrir í upphaflegu útboði, sem er að sjálfsögðu ákveðin vonbrigði. Þessi fækkun ferða er í samræmi við heimild um magnbreytingar samkvæmt útboðsgögnum. Það var alls ekki sjálfgefið að samningar næðust. Því fagna ég þessu og þegar ég segi að okkur hafi létt þá meina ég það. Óvissan um þetta var ekki að fara vel í samfélagið. Hægt er að lesa um þennan samning hér: https://www.vegagerdin.is/

Suðureyri í dag, 19.apríl, tveir dugnaðarforkar að moka snjóinn af sparkvellinum svo hann verði hægt að nota á sumardaginn fyrsta.

 Við komum sem sagt hingað heim í gærkvöldi. Dagurinn í dag bauð uppá skokktúr, Fjörugusu, sund, þvottastúss og þá fékk heimaræktunin aðhlynningu en það styttist í að hægt verði að færa ræktunina út í Bambahúsið mitt.

Framundan er fundavika, allskonar verkefni og frágangur.