Dagbók bæjarstjóra 2026: Vika 63
Dagbók bæjarstjóra dagana 16.-22.mars 2026, í 63 viku í starfi.
Byrjaði vikuna á flugpælingum. Eflaust vita flest sem fylgjast með að Vegagerðin hafnaði tilboði Icelandair í fluglegginn á milli Reykjavíkur og Ísafjarðar sem boðinn var út núna í byrjun árs. Vegagerðin og Icelandair eru í samningaviðræðum um hvort að unnt sé að ná saman samningi. Við höfum haft fregnir af fundum og vonumst eftir að þetta fari allt að skýrast um hvort að unnt sé að ná saman samningi á grundvelli útboðsins.

Ég í viðtali við Lillý Valgerði á Sýn, mál málanna: veðrið.
Það var ætlunin að verja dagparti á Þingeyri ásamt nokkrum sviðsstjórunum. Við ákváðum vegna veðurútlits að fresta þeim. Ný dagsetning er enn ekki ákveðin en það getur verið þrautin þyngri að finna dag sem gengur upp, slíkar eru annirnar á mörgum vígstöðvum. Eins og áður sagði þá viljum við leggja okkur fram um að hitta sem flesta og byrja á að heimsækja fólkið í félagsstarfi aldraðra og eiga svo fundi með öðru heimafólki, kíkja á félagsheimilið og í búðina. Á morgun verðum við á Suðureyri. Þingeyringar það kemur að að ykkur.

Á miðvikudagsmorgun var stund milli stríða hvað veðrið áhrærði.

Þessi mynd var tekin á fimmtudaginn, það var frekar leiðinlegt veður en myndin fangar það ekkert sérstaklega vel.
Hingað komu aðilar frá Háskólasetrinu sem eru að vinna að verkefni sem snýr að áhættustýringu. Þau eru í samstarfi um þessar mundir sem snýst um rannsóknarverkefni sem snýr að áhættustjórnun og viðbrögðum við náttúruvá. Hingað kom sem sagt kona frá Þrándheimi í Noregi sem er í rannsóknardvöl hér á landi og hún er að skoða áhættustjórnun og samskipti er varða áhættu. Fyrir verkefnið þótti þeim gagnlegt að fá að ræða stuttlega við mig um reynslu almannavarna og aðgerðastjórnar þegar kemur að áhættustjórnun og viðbrögðum við náttúruvá. Þetta er samnorrænt verkefni sem er verið að vinna en fulltrúar frá Landbúnaðarháskólanum komu hér einnig. Ég fékk Axel með mér á þennan fund og umræðurnar snerust að viðbrögðum við náttúruhamförum og viðbúnaðarstarfi. Mögnuð tímasetning þar sem yfir okkur hefur gengið leiðindaveður með tilheyrandi viðbúnaði og rýmingum á nokkrum svæðum. Ég hef einmitt átt nokkur samtölin við Hörpu á Snóflóðasetrinu í liðinni viku þar sem hún er að upplýsa mig um stöðuna. Hér féllu fjölmörg flóð en sem betur fer veit ég ekki annað en að það hafi allt farið vel. Fjölmiðlar voru einnig eitthvað að hafa samband við mig til að fá fregnir af „ástandinu“.
Mánaðarlegur forstöðumannafundur fór fram í vikunni, þar fórum við m.a. yfir drög að dagskrá í tilefni af 30 ára afmæli Ísafjarðarbæjar. Stefnt er á að standa fyrir viðburðum í sundlaugum bæjarins 29.-31.maí (myndlist, bíó, tónleikar). Á afmælisdaginn sjálfan verður opnun á sýningu bæjarlistamannsins í listasafninu, frítt í krakkabíó, frítt í sund, skóla- og leikskólabörn munu marsera um byggðakjarnana og það verður spari hádegismatur í mötuneytum skólanna. Það verða opin hús í félagsstarfi eldri borgara í öllum kjörnum og opið hús í Hvestu. Á þessum opnu húsum verður boðið upp á köku. Ljósmyndasýningar munu hanga uppi þar sem bæjarlistamönnum og íþróttamönnum bæjarins verður gert hátt undir höfði. Þá verður skemmtilegt vefinnlegg á heimasíðu bæjarins svo eitthvað sé nefnt þar sem við leitumst við að heyra í fyrstu bæjarfulltrúum sameinaðs sveitarfélags. Við hvetjum að sjálfsögðu fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök og íbúa alla til að gera sér dagamun þann 1.júní 2026! 1.júní er mánudagur en það er allt í lagi, maður á að halda uppá afmælið sitt, sama hvaða vikudegi hann lendir á.

Sundhöllin á Ísafirði, 80 ára!

Á opnu húsi í Sundhöllinni á Ísafirði.

Opið hús í Sundhöllinni.
Á föstudaginn var opið hús í Sundhöllinni en hún hefur verið lokuð síðustu mánuði vegna bilana og endurbóta. Boði var uppá kökur og kaffi og fékk fólk að rölta um húsið og skoða þær framkvæmdir og endurbætur á búnaði sem farið hefur verið í vetur. Á döfinni er að skipta út gluggum og útbúa neyðarútgang. Þannig að endurbótum á þessu ári er ekki lokið. Mér finnst Sundhöllinn á Ísafirði vera mikil prýði fyrir bæinn og finnst að við eigum að hlúa að henni sem best. Enda er hún 80 ára!

Þessar græjur eru nýjar í Sundhöllinni. Oft er það það sem ekki sést sem þarf að laga en gestum gafst tækifæri á að skoða þetta á föstudaginn var.

Katja, starfsmaður Sundhallarinnar á Ísafirði býr á Suðureyri. Hún hjólar í vinnuna, nánast í öllum veðrum.
Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga fór fram í vikunni, þar var stjórnin endurkjörin óbreytt en breyting var á varastjórn þar sem Gylfi Ólafs kom þar inn. Til hamingju með það Gylfi. Ég ætlaði að taka þátt í þessum fundi á staðnum (í Reykjavík) en vegna veðurs þá gekk það ekki eftir, ég tók því þátt í honum í fjarfundi, sem var líka alveg ljómandi fínt.
Bæjarráð og bæjarstjórn funduðu í vikunni. Stóru fréttirnar þar voru að ársfjórðungsuppgjör vegna fjórða og síðasta ársfjórðung 2025 var lagt fram til kynningar en skv því lítur uppgjörið betur út en áætlanir gerðu ráð fyrir. Ég er stolt af starfsfólki og bæjarfulltrúum og sé á þessu að okkur gengur vel að halda utan um reksturinn. Þann 1.apríl n.k. verður ársreikningur lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Helgin hefur liðið í rólegheitum, hittum vini á föstudagskvöld, fórum í sund hér á Suðureyri og slökuðum á í blíðunni sem kom loksins.

Fastur liður í viku hverri, kirkjukórsæfing.