Dagbók bæjarstjóra 2026: Vika 61
Dagbók bæjarstjóra
Vika 61 í starfi (2.-8.mars 2026)
Fyrsta frétt vikunnar var andlátsfregn Davíðs Oddssonar, ritstjóra Morgunblaðsins og fyrrverandi forsætisráðherra. Hann var áhrifamikill stjórnmálamaður, sem markaði djúp spor í sinn samtíma og íslenska stjórnmálasögu. Það var því flaggað í hálfa stöng við Stjórnsýsluhúsið á Ísafirði þennan mánudag, 2.mars.
Vorið nálgast! Það merki ég af því að ég er farin að fá vinnslusamninga til undirritunar. Það sem felst í því er að útgerðir og vinnsluaðilar afla gera með sér samkomulag eða yfirlýsingu um vinnslu afla vegna byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2025-2026. Ég fæ þessar yfirlýsingar til undirritunar sem fara svo til Fiskistofu. Þetta snýst um það að þau sem ætla að vera á strandveiðum gera svona samninga til að eiga möguleika á úthlutun á byggðakvóta sem lengir þá í vertíðinni hjá þeim.

Flaggað í hálfa við stjórnsýsluhús.
Landsnet boðaði til upplýsingafundar vegna tengingu Hvalárvirkjunar. Farið var yfir stöðuna á þeim verkþáttum sem eru í gangi. Ný útfærsla á valkostum í umhverfismati var kynnt og þá var farið yfir tímalínu verkefnisins. Línur ættu að skýrast öðru hvoru megin við sumarfrí hvaða flutningsleið verður fyrir valinu.
Hagaðilafundur Aldrei, Ísafjarðarbæjar og Vestfjarðastofu fór fram á þriðjudag. Aldrei fór ég suður hefur allar götur lagt sig fram um að vera góður gestgjafi, sem hefur verið eitt helsta einkennismerki hátíðarinnar. Nú kallaði forsvarsfólk AFÉS eftir því að samfélagið allt sameinist um að vera góður gestgjafi – að öll sem eiga hag af því að páskarnir séu stórviðburður á norðanverðum Vestfjörðum komi saman og ræði um hvernig málum skal háttað til lengri framtíðar og skemmri. Það var virkilega góður fundur þar sem augljóst var að hagaðilarnir leggja áherslu á jákvæða upplifun, öryggi og góða upplýsingagjöf.
Um kvöldið var svo íbúafundundur þar sem „skemmtanavél heimaliðsins“ var knúin í gang og listi yfir þá listamenn sem spilar á hátíðinni í ár var opinberaður.
Báðir þessir fundur, hagaðilafundurinn og íbúafundurinn voru sérlega vel sóttir og gefur góð fyrirheit um páskahátíðina í ár.

Á hagaðilafundi Aldrei, Ísafjarðarbæjar og Vestfjarðastofu.

Lænöppið í ár.

Aldrei íbúafundur.
Bæjarstjórn, fulltrúar í menningarmálanefnd og skóla-íþrótta- og tómstundanefnd fundaði með Inga Birni Guðnasyni frá Edinborgarhúsi, þar sem hann kynnti nýja stefnu Menningarmiðstöðvar Edinborgar, og átti samtal við kjörna fulltrúa um stuðning og samstarf sveitarfélagsins til að auka menningarstarf í húsinu. Undanfarin misseri hefur átt sér stað samtal milli sveitarfélagsins og Edinborgar um stuðning sveitarfélagsins og Ríkisins við húsið og menningarstarfsemina þar. Hafa verið uppi hugmyndir um þríhliða samkomulag, eða tvo tvíhliða samninga, til að gera húsinu og menningarstarfi þess hærra undir höfði. Ýmsar hugmyndir hafa komið fram til að auka umsvif hússins og stækka markhóp þess. Því þótti mikilvægt fyrir frekari vinnslu málsins innan stjórnsýslunnar að fá fram sjónarmið og hugmyndir kjörinna fulltrúa um hvernig sveitarfélagið getur komið að verkefninu og í hvaða formi stuðningurinn getur verið.

Frá kynningu um stefnumótun Edinborgarhúss.

Ingi Björn segir frá Edinborgarhúsi, fór yfir söguna og spáði í framtíðina.
Landsfundur Vinstri grænna fór fram nú um helgina, á Selfossi. Ég mætti og hafði gaman af. Ný forysta kosinn og andinn hressandi. Best þótti mér að hitta fólkið, gamla og nýja vini. Ég gaf kost á mér sem meðstjórnanda í stjórn hreyfingarinnar og hlaut kosningu. Fyrir það er ég afar þakklát. Það eru mörg spennandi verkefni við að byggja upp hreyfinguna. Vissulega er brekka framundan en við erum til í slaginn og ég hlakka til að starfa með nýkosinni stjórn en þakka í leiðinni fyrri stjórn/um fyrir þeirra störf.

Stjórn og varastjórn Vinstri grænna sem kosin var á landsfundi 7.-8.mars 2026.

Pallborð um sveitarstjórnarmál.

Stjórnskipulagsnefnd að störfum við að yfirfara ályktanir á landsfundi Vinstri grænna á Selfossi.


Ég og Líf eigum ýmislegt sameiginlegt, þið megið giska á í hvaða flokki þeir eru.....
Alþjóðlegur baráttudagur kvenna er í dag 8.mars. Það þótti því fara vel á því að hefja daginn á að syngja Áfram stelpur. Skynjaði ekki annað en öll sem voru viðstödd hugsuðu með þakklæti til þeirra kvenna sem ruddu brautina.

Það var kvenfélagsfundur í vikunni, ég var í "kaffihóp", las upp smá samantekt um ástandið og sagði frá tveimur bókum sem fjalla um það á ólíkan hátt, bækurnar eru "Dúlla" eftir Kristínu Svövu og "Rokið í stofunni" eftir Ninnu.

Morgunskokk á Súganda, nú er orðið það bjart á morgnana að maður getur farið út að hlaupa fyrir vinnu, það er best.

Á meðan ég var á landsfundi bauð Landhelgisgæslan íbúum Ísafjarðarbæjar að koma um borð í varðskipið Þór á Flateyri. Steinunn Einarsdóttir forseti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar færði skipherrarnum Páli Geirdal litla gjöf frá bænum í tilefni 100 ára afmælis gæslunnar.