Dagbók bæjarstjóra 2026: Vika 59

Á forstöðumannafundi í vikunni, fórum við yfir niðurstöður gallup könnunar en þær munu m.a. nýtast o…
Á forstöðumannafundi í vikunni, fórum við yfir niðurstöður gallup könnunar en þær munu m.a. nýtast okkur í ferlavinnunni. 

Dagbók bæjarstjóra dagana 16.–22 febrúar 2026, í 59. viku í starfi.

Magnús frá Ansa kom í vikunni en hann er að aðstoða okkur hjá Ísafjarðarbæ við ferlagreiningar til að laga hnökra í starfseminni í stjórnsýslu bæjarins. Við getum nefnilega bætt þjónustuna, bæði inná við (á milli sviða) og útá við, og við ætlum að gera það. Það gerum við með því að staldra við og líta inná við, í því felast tækifæri. Þetta er semsagt vinna sem er í gangi þessar vikurnar innan stjórnkerfis Ísafjarðarbæjar s.k. ferlagreining, þar sem við höfum fengið til okkar utanaðkomandi ráðgjafa, sérfræðing í straumlínustjórnun. Í þessari vinnu er starfsemin rýnd og í framhaldi einfölduð með þjónustu við íbúa að leiðarljósi. Mjög spennandi verkefni og ég vona sannarlega að árangurinn sýni sig þegar frá líður. Ég minnti á það í samtali við BB í vikunni að við þyrftum að minna okkur reglulega á einkunnarorð Ísafjarðarbæjar „Við þjónum með gleði til gagns“ og sömuleiðis þurfum við sem samfélag að tala okkur upp en ekki niður.

 

Ein lýsandi mynd yfir það að stundum getur verið gott að staldra við og laga vinnulagið áður en lengra er haldið, tekur vissulega smá tíma en þegar á botninn er hvolft þá skilar það sér í betri afköstum.

 

Ég fór á fund umhverfis- og samgöngunefndar ásamt vestfirskum kollegum, þar vorum við að fylgja eftir umsögnum okkar um samgönguáætlun en allar umsagnirnar sem sendar voru inn má nálgast  hér á vef alþingis.

Síðan voru allskonar verkefni á borðinu, fundir, stórir sem smáir. Bæjarráð og bæjarstjórn voru á sínum stað og þá fundaði nefnd um framtíðarhúsnæði leik- og grunnskóla. Minni fólk á að allar fundargerðir eru aðgengilegar á heimasíðu bæjarins.

Það var töluvert um bollu og sælgætisát í vikunni enda uppáhaldsvika sumra, bolludagur, sprengidagur og öskudagur. Ég var svo heppin að afmæli mitt bar uppá öskudag. Ég fékk því marga afmælissöngva, fór á öskudagsball á Suðureyri og fékk gesti í matarmikla súpu. Ég ákvað það nefnilega þegar ég varð fimmtug að hér eftir yrði alltaf „veisla“ á afmælisdaginn minn og við það stend ég.

 

Á öskudagsballinu á Suðureyri voru prinsessur, slökkviliðsmenn, ofurhetjur og allskonar...

Við Dúi skelltum okkur á öskudagsball á afmælisdaginn minn.

 

 

Þessar verur komu og sungu fyrir okkur á bæjarskrifstofunni. 

Kötturinn sleginn úr tunnunni.

 

Við Dúi höfðum loksins tíma til að sjá leiksýningarnar sem hafa verið á fjölunum undanfarið hér fyrir vestan. „Beint í æð“ hjá Litla leikklúbbnum á Ísafirði og „Með kjafti og klóm“ hjá Leikfélagi Flateyrar. Ólíkar sýningar en báðar frábærar og mikið í þær lagt. Það eru ófáar klukkustundirnar sem liggja að baki og þau sem gefa sig í þetta leiklistarstarf eiga hrós skilið. Við erum rík af áhugaleikhúsfólki hér og takk öll sem eitt fyrir ykkar framlag.

Frá leiksýningu á Flateyri.

Það var kominn tími á að hann Úlfur fengi pláss í dagbókinni. Hann stóð sig með mikilli prýði á leiksviðinu á Flateyri.

Frá leiksýningu á Ísafirði.

Þá tókum við rúnt í bústaðinn okkar inní Djúp á föstudagskvöld og gistum eina nótt þar var allt eins og það á að vera. Það er gott að jarðtengja sig í Djúpinu en þangað eigum við Dúi bæði rætur og tengjum á einhvern hátt við umhverfið og náttúruna þar. Sunnudagurinn bauð svo upp á kirkjukórsæfingu, messu í Suðureyrarkirkju og svo Sólarkaffi í Félagsheimili Súgfirðinga sem Kvenfélagið Ársól stendur alltaf fyrir.

 

 

„Sjaldan er gíll fyrir góðu nema úlfur á eftir renni.” Þannig að við erum bara í góðm málum. Myndin er tekin á Hjöllum í Skötufirði.

Hlaupatúr í Mjóafirði.

Lestur í rólegheitum inní bústað.

Sr. Fjölnir predikar í sunnudagsmessu í Suðureyrarkirkju.

 

Kaffinefnd sólarkaffisins.

Sólarkaffi Kvenfélagsins Ársólar tókst með stakri prýði.

Sólarkaffi Kvenfélagsins Ársólar tókst vel en það hafa líklega mætt um 160-170 manns.

 

Búnar að vaska upp og ganga frá eftir sólarkaffið.