Dagbók bæjarstjóra 2026: Vika 57

Frá Ísófóníutónleikum í Ísafjarðarkirkju.
Frá Ísófóníutónleikum í Ísafjarðarkirkju.

Dagbók bæjarstjóra dagana 2. – 8.febrúar 2026, í 57. viku í starfi.

Vikan bauð upp á pakkaða daga með allskonar fundum og vinnu á daginn og þorrablótsæfingum á kvöldin.

Samráðsfundur með sviðsstjórum bæjarins var á sínum stað og þá fundaði bæjarráð og bæjarstjórn í vikunni.

Svæðisskipulagið var til umfjöllunar hjá mér (varaformanni) og Lilju Magg (formanni nefndarinnar) ásamt ráðgjöfum og starfsmönnum Vestfjarðastofu varðandi umbrot áætlunarinnar sem og að undirbúa kynningarfundi fyrir íbúa sem áformaðir eru í febrúarlok.

Stjórnsýsluskoðun fór fram í vikunni, þetta er árlegt og fer þannig fram að farið er yfir spurningalista um stjórnsýslu sveitarfélagsins í tengslum við endurskoðun 2025.

Ég, Tinna og Annska frá Vestfjarðastofu áttum góðan fund með Aldrei fólki. Það er allt á fullu hjá þeim í að undirbúa hátíð ársins, spennan magnast.

Öldungaráð fundaði með bæjarstjórn í vikunni. Það er hefð fyrir því að þau fundi saman einu sinni á ári. Hér eru nokkrir punktar um það sem við ræddum og við fórum yfir á fundinum.


Öldungaráð með fulltrúum úr bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar eftir góðan fund.

  • Stuðningsþjónusta hefur aukist jafnt og þétt. Fólk býr lengur á eigin heimili en áður – sem er mjög jákvæð þróun. Fyrir utan þjónustu í formi heimilisþrifa er félagslegt innlit orðið að ríkum þætti í þjónustu við aldraða. Einnig er farið út að versla með eða án þjónustuþega, eftir atvikum.
  • Afsláttur vegna fasteignagjalda til aldraðra og öryrkja var hækkaður við gerð síðustu fjárhagsáætlunar úr 100.000 kr. hámarksstyrk í 200.000 kr. Jafnframt var tekjuviðmið hækkað þannig að mun fleiri eiga rétt á afslætti en áður. Fólk sem misst hefur maka á rétt á afslætti í eitt skipti, þ.e. andlátsárið eða næsta ár.
  • Félagsstarfið hefur farið vaxandi, nú verður á ný boðið upp á þjónustu á Flateyri en hún féll niður í nokkur ár vegna þátttökuleysis – eða réttara sagt vegna þess hversu fáir íbúar voru aldraðir á Flateyri.
  • Öldrunarfulltrúi stýrir starfinu og hefur haft fjölbreytni og nýja atburði að leiðarljósi, ásamt því að stýra fjölda viðburða sem eru búnir að vera á dagskrá í áraraðir. Þá er gott samstarf við Félag eldri borgara sem einnig býður upp á fjölbreytta þjónustu.
  • Máltíðir á Hlíf sem og útsendar máltíðir voru lækkaðar í verði á árinu 2026. Boðið er upp á heimsendan mat en um 8-10 manns nýta sér þá þjónustu. Það eru um 70-80 manns í matarþjónustu á Hlíf og borðar fólk sem sækir dagdeild þar.
  • Akstursþjónustan hefur vaxið verulega undanfarin ár en það er ástæða til þess að taka fram að þessi þjónusta er ekki bundin lögum og því ákvörðun bæjarstjórnar að veita hana. Akstursþjónusta hefur aukist bæði hjá fötluðum/öryrkjum og öldruðum frá öllum bæjarkjörnunum.
  • Samkvæmt samningi við ríkið eru öll dagdeildarrými skilgreind á Ísafirði en boðið er upp á akstur frá öðrum bæjarkjörnum í þjónustuna. Stöðugt þarf að minna á þjónustuna og sérstaklega hefur heimahjúkrun verið í samvinnu við Ísafjarðarbæ um að vekja athygli á dagdeildinni. Í dag eru 14 einstaklingar að nýta sér þjónustuna og þar af eru fimm með heilabilunarsjúkdóm. Þjónustan við fólk sem er með heilabilunarsjúkróm krefst mikillar nærveru.
  • Ísafjarðarbær hefur komið að þjónustu við aldraða með öðrum hætti á Þingeyri og tengist það þjónustunni á Tjörn, þar sem Ísafjarðarbær á fimm íbúðir. Hér flokkast hlutdeild Ísafjarðarbæjar í stöðugildi vegna þrifa, og stöðugildi forstöðumanns á Tjörn, sem og stöðugildis í eldhúsi á Tjörn. Almenn félagsleg heimaþjónusta er þó með sama sniði og í öðrum bæjarkjörnum.

Fyrir utan það sem á undan er talið stendur almenn félagsþjónusta öldruðum til boða – að sjálfsögðu! Þjónustan hefur mest falist í að aðstoða fólk við að sækja rétt þess til úrræða á vegum Tryggingastofnunar ríkisins og Sjúkratrygginga. Einnig er veitt aðstoð við samskipti vegna lífeyrismála. Þá er veruleg aðstoð veitt vegna umsókna og upplýsingagjafar vegna umsókna um þjónustu hjá sveitarfélaginu.

Velferðarsvið kemur að gerð færni- og heilsumats fyrir einstaklinga sem eru í þörf fyrir dvöl á hjúkrunarheimili. Ráðgjafi á velferðarsviði vinnur mat á félagslegri stöðu einstaklinganna, m.a. með tilliti til aðgengis að húsnæði þess, umfangi þjónustu við umsækjandann og mat aðstandenda á stöðu hans. Sviðsstjóri velferðarsviðs situr í færni- og heilsumatsnefnd Vestfjarða, ásamt öldrunarlækni og hjúkrunarfræðingi.

Þess ber að geta að Ísafjarðarbær sinnir allri þjónustu við aldraða í Súðavíkurhreppi samkvæmt samningi, nema félagsstarfi aldraðra. Samvinna er þó töluverð á milli starfsfólks þar og öldrunarfulltrúa og jafnframt við notendur þjónustunnar.

Verkefni fram undan er að gera þarf mat á aðstæðum þannig að jafnræðis sé gætt í þjónustuframboði á milli allra bæjarkjarna þ.e. félagslegt innlit og jafnframt þjónusta við íbúa sem búa ekki á Tjörn eða Hlíf.

Húsnæðismál hafa oft komið upp í umræðum og á dagskrá öldungaráðs. Það hefur verið stefna bæjarstjórna Ísafjarðarbæjar að sveitarfélagið byggi ekki húsnæði til útleigu. Gildir það um allt húsnæði en einnig húsnæði sem er sérstaklega ætlað öldruðum, fötluðum eða fólki sem býr við sérstakar félagslegar aðstæður. Ísafjarðarbær á fjölda íbúða sem flokkast undir félagslegt leiguhúsnæði, þeim er úthlutað eftir reglum um slíkar íbúðir. Ávallt er forgangsraðað samkvæmt mati á félagslegum, fjárhagslegum og heilsufarslegum aðstæðum umsækjenda. Það hefur verið skortur á húsnæði með góðu aðgengi í sveitarfélaginu. Mikil samskipti og samvinna er við umsækjendur um húsnæði. Fjórða hæðin á Hlíf þar sem teiknaðar hafa verið þrjár íbúðir er enn í burðarliðnum og vonandi að þar verði hægt að hefja vinnu sem fyrst.

Að þessu sögðu eru uppi hugmyndir um að óskað verði eftir að Þroskahjálp og/eða Öryrkjabandalagið byggi íbúðir sem eru sniðnar að þörfum félagsmanna þeirra. Gengi það eftir myndi losna um eitthvað af húsnæði með góðu aðgengi.

Á laugardaginn fóru fram stórkostlegir tónleikar á vegum Tónlistarskóla Ísafjarðar „Ísófónía“ þar sem fram komu nemendur, kennarar og hljóðfæraleikarar af svæðinu. Píanónemar spiluðu átthent, forskóli, söngsmiðja og barnakór komu fram auk lúðrasveitar TÍ og skólalúðrasveit. Ísafjarðarkirkja var troðfull af nemendum og aðstandendum en þetta er árlegur viðburður.

Ég fékk bókina hennar Þóru frá Stað í hendurnar í vikunni, fallega áritaða. „Þannig var ég – þannig er ég“. Virkilega fróðleg og mikill aldarspegill. Dýrmætt, sérstaklega fyrir afkomendur Þóru að hún skuli hafa komið minningum sínum á prent.


Bókin hennar Þóru – mæli með.


Þessi skýrir sig sjálf.

Öll kvöld vikunnar voru tileinkuð þorrablótsundirbúningi en uppskeran var svo þorrablótið sjálft hér í Súganda sem haldið var í 90. skiptið. Sá háttur er á hér að annað hvert ár sjá konurnar um blótið og hitt árið karlarnir og þá er það blót tímasett nær Góu. Á þorrablótinu hlotnaðist mér sá heiður að flytja minni karla yfir borðhaldinu. Það er alltaf mikið sungið undir borðhaldinu á Súganda og var engin breyting þar á í ár. Eftir borðhald fór svo fram 80 mínútna skemmtidagskrá, á sviði, með leikþáttum og söngvum. Það var mikil keyrsla og ansi þakklátar þorrakonur sem tjúttuðu svo fram á nótt en Önfirðingarnir í F1 rauður spiluðu fyrir dansi.

Bóndinn skellti í hveitikökur, þær eru alltaf nauðsynlegar í þorrabakkann.


Petra setti blótið og sá til þess að allt færi vel fram.


Baksviðs á vinstri vængnum.


Baksviðs á vinstri vængnum.


Hægrivængurinn (baksviðs)


Lilja tók sig vel út sem Palli prestur.


Í lokaatriði sýningarinnar var skellt í eina sjálfu. Skemmtinefndin og áhorfendur í sal.


Skemmtinefndin á þorrablóti Súgfirðinga 2026.

Þorrablóts-hjónamynd.


Dansdrottningar á Súganda.


Dúi og Óli í miklu stuði.


Það var alveg dansað á þorrablóti á Súganda, eins og sjá má...

Í dag var svo slappað af, farið í sund og hámhorft á sjónvarp.