Dægradvöl: Skráning nemenda í 1.-4. bekk í Grunnskólanum á Ísafirði

Það hefur nú verið opnað fyrir skráningar barna í Dægradvöl fyrir skólaveturinn 2026-2027. Nemendum í 1.-4. bekk (f.2020-2017) í Grunnskólanum á Ísafirði býðst að fara í Dægradvöl eftir að skóladegi lýkur þar til klukkan fjögur. Starfsfólk aðstoðar börnin við að fara á réttum tíma í skipulagðar tómstundir eða skapa þeim rými fyrir frjálsan leik.

Mikilvægt er að foreldrar skrái börn sín fyrir 4. júní. Eftir þann tíma fer barnið á biðlista og kemst inn í Dægradvöl þegar búið er að manna allar stöður miðað við fjölda skráðra barna.

Skráning fer fram rafrænt í gegnum þennan hlekk:

Dægradvöl | Ísafjarðarbær

Ef spurningar vakna er hægt að hafa samband við Birtu Ósk Hönnudóttur, forstöðumann Dægradvalar, á netföngunum daegradvol@isafjordur.is eða birta@isafjordur.is 

//

Registrations have now opened for children in Dægradvöl (After-School Program) for the 2026–2027 school year. Students in grades 1–4 (b.2020-2017) at Grunnskólinn á Ísafirði are offered the opportunity to attend Dægradvöl after the school day ends until 4:00 PM. Staff members assist children in getting to organized extracurricular activities on time, as well as providing space for free play.

It is important that parents register their children before June 4. After that date, children will be placed on a waiting list and admitted to Dægradvöl once all positions have been staffed according to the number of registered children.

Registrations take place electronically through the following link:
Dægradvöl | Ísafjarðarbær

If any questions arise, please feel free to contact Birta Ósk Hönnudóttir, director of Dægradvöl, via the email addresses daegradvol@isafjordur.is or birta@isafjordur.is