Birgir Gunnarsson ráðinn bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar

Birgir Gunnarsson.
Birgir Gunnarsson.

Meirihluti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar hefur ákveðið að ráða Birgi Gunnarsson í starf bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar. Birgir er fæddur árið 1963 og er uppalinn á Siglufirði og lauk þaðan grunnskólanámi. Hann er stúdent frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki og rekstrarfræðingur frá Háskólanum á Bifröst. Því til viðbótar lauk hann námi í rekstri og stjórnun frá Háskólanum í Gautaborg.  

Hann á þrjú börn, þau Sævar, Gunnar og Birgittu, og er í sambúð með Astrid Boysen.

Birgir var forstjóri Reykjalundar endurhæfingarmiðstöðvar í Mosfellsbæ til loka ársins 2019. Þar áður var hann forstjóri á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki, frá 1991-2007.  

Birgir hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum s.s. setið stjórn Norræna heilbrigðisháskólans í Gautaborg, verið formaður Landssambands heilbrigðisstofnana, formaður Félags forstöðumanna heilbrigðisstofnana og ýmislegt fleira. 

Birgir mun hefja störf 1. mars en ráðningin er með fyrirvara um samþykki bæjastjórnar sem kemur næst saman 20. febrúar.