Bæjarlistamaður Ísafjarðarbæjar 2025 sýnir í Safnahúsinu

Bæjarlistamaðurinn Ingvar Friðbjarnar Sveinsson, Ingi Bjössi, opnar sýningu í Fjölnotarýminu í kjallara Safnahússins á Ísafirði mánudaginn 1. júní kl. 16:00. Boðið verður upp á léttar veitingar og eru öll hjartanlega velkomin.

Á sýningunni gefur að líta nákvæm og einstök líkön af skipum og togurum sem endurspegla sögu sjávarútvegs, mannlífs og menningar við strendur Vestfjarða. Í verkunum má sjá mikla natni og þolinmæði þar sem hvert smáatriði er unnið af alúð og virðingu fyrir efniviðnum og sögunni sem skipin bera með sér.


Fortíð og nútíð

Verk Inga Bjössa mynda brú milli fortíðar og nútíðar. Þar fá minningar, sjósókn og daglegt líf fyrri tíma nýtt form í gegnum handverk, rannsókn og listræna útfærslu. Frumlegt efnisval og persónuleg nálgun skapa sterka tengingu við samfélagið og þá arfleifð sem mótað hefur lífið við sjóinn.

Sýningin veitir innsýn í heim þar sem handverk og sagnir samfélagsins fléttast saman og minna á mikilvægi þess að varðveita sögu og menningu fyrri kynslóða.

Sýningin er hluti af dagskrá í tilefni af 30 ára afmæli Ísafjarðarbæjar og eru íbúar og gestir hvattir til að taka þátt í hátíðarhöldunum.

Sjá nánar um sýninguna á viðburðasíðu.