Ávarp fjallkonu 2026

Fjallkona Ísafjarðarbæjar 2026, Heiðrún Björk Jóhannsdóttir.
Mynd: Ágúst G. Atlason
Fjallkona Ísafjarðarbæjar 2026, Heiðrún Björk Jóhannsdóttir.
Mynd: Ágúst G. Atlason

Fjallkona Ísafjarðarbæjar árið 2026 var Ísfirðingurinn Heiðrún Björk Jóhannsdóttir.

Heiðrún flutti Ávarp fjallkonu eftir Þórarinn Eldjárn, sem er einn af hennar uppáhalds höfundum.


Að eiga sér stað

 

í staðlausum heimi

eiga þar heima

eiga heima í heimi

eins og ekkert sé.

Eiga þar

varnarþing

viðspyrnu

vé.

 

Að eiga sér mál

í málóðum heimi

sækja í þann sjóð

sagnir

fræði

ljóð

enn og aftur

geta ekki hætt að gruna

né gleymt að muna.

 

Að eiga sér fjall

í flötum heimi

eiga þar skjól

skína við sól

láta sér lynda

leik regns og vinda.

 

Eiga þar

mark

mið

kennileiti.

 

Fjall

að horfa á

inn til lands

að horfa af

út yfir haf.

 

Fjall

kona

karl

er allt

sem

þarf

í arf.

 

Það er sú þrenning

sem rímar á móti menning.