86% íbúa ánægðir að búa í Ísafjarðarbæ

Niðurstöðurnar könnunar á ánægju íbúa með þjónustu Ísafjarðarbæjar sýna almenna ánægju með flesta þætti í þjónustu sveitarfélagsins. Þar stendur hæst ánægja með sveitarfélagið sem stað til að búa á, þar sem 86% íbúa eru ánægðir. Sömuleiðis er mikil ánægja með sorphirðu (73%), gæði umhverfis (71%) og hvernig staðið er að menningarmálum (70%).

Þjónusta leik- og grunnskóla og þjónusta við eldri borgara fá jákvæða umsögn og eru nálægt meðaltali sveitarfélaga í heild á landsvísu.

Minnst ánægja er með skipulagsmál, þar sem 25% eru ánægð og 49% óánægð. Einnig sýna niðurstöðurnar minni ánægju með þjónustu við fatlað fólk (56%), aðstöðu til íþróttaiðkunar (54%) og þjónustu við barnafjölskyldur (53%).

Að sögn Sigríðar Júlíu Brynleifsdóttur, bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar, verða niðurstöður könnunarinnar nýttar til að forgangsraða umbótaverkefnum í þjónustu sveitarfélagsins á komandi misserum.

„Það er gott að fá þessar niðurstöður núna þar sem vinna við að gera vinnuferla skýrari, innan og á milli sviða sveitarfélagsins, er nýhafin. Við vonum að hún skili sér í bættri þjónustu og þá aukinni ánægju.“

Niðurstöður könnunarinnar í heild

Nánar um könnunina:

Könnunin var framkvæmd af Gallup dagana 17. nóvember 2025 – 13. janúar 2026, bæði í síma og með netkönnun, og var fjöldi svarenda í Ísafjarðarbæ 151.

Í könnuninni var spurt um ánægju/óánægju með eftirfarandi þætti í þjónustu sveitarfélagsins:

  • Sveitarfélagið sem staður til að búa á
  • Skipulagsmál
  • Gæði umhverfis í nágrenni heimilis
  • Þjónusta við barnafjölskyldur
  • Þjónusta grunnskóla
  • Þjónusta leikskóla
  • Aðstaða til íþróttaiðkunar
  • Þjónusta við eldri borgara
  • Þjónusta við fatlað fólk
  • Hvernig sveitarfélagið sinnir menningarmálum
  • Þjónusta í tengslum við sorphirðu
  • Þjónusta sveitarfélagsins í heild, bæði út frá reynslu og áliti
  • Úrlausn starfsfólks sveitarfélagsins á erindum
  • Hvaða þjónustu þarf helst að bæta