572. fundur bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar kemur saman til 572. fundar fimmtudaginn 4. júní nk. kl. 17. Fundurinn fer fram í fundarsal bæjarstjórnar á annarri hæði í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði, og er öllum opinn.

Bein útsending af fundinum er á Youtube-rás Ísafjarðarbæjar

Dagskrá

Almenn mál

1. Nefndarmenn 2026-2030 - kosning forseta og varaforseta - 2026050217

Kosning forseta og varaforseta bæjarstjórnar samkvæmt 7. gr. samþykkta um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.

2. Nefndarmenn 2026-2030 - kosning í bæjarráð og fastanefndir - 2026050217

Tillaga forseta um kosningu í fastanefndir Ísafjarðarbæjar, í samræmi við 48. gr. samþykktar um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.

Fastanefndir:

  1. Bæjarráð
  2. Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
  3. Velferðarnefnd
  4. Menningarmálanefnd
  5. Skipulags- og mannvirkjanefnd
  6. Umhverfis- og framkvæmdanefnd
  7. Hafnarstjórn
  8. Yfirkjörstjórn
  9. Fjallskilanefnd

3. Kosningar til sveitarstjórnar 2026 - 2026030237

Lögð fram til kynningar greinargerð yfirkjörstjórnar Ísafjarðarbæjar um úrslit kosninganna, skv. 119. gr. kosningalaga nr. 112/2021, dags. 17. maí 2026.

4. Málefnasamningur meirihluta Framsóknar og óháðra og Viðreisnar 2026-2030 - 2026050218

Forseti bæjarstjórnar leggur fram til kynningar málefnasamning meirihluta nýrrar bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar, fulltrúa Framsóknar og óháðra og Viðreiðsnar.

5. Fundir bæjarstjórnar 2026-2030 - sumarleyfi 2026 - 2026040085

Tillaga forseta um að sumarleyfi bæjarstjórnar verði tveir mánuðir, júlí og ágúst 2026, og að bæjarstjórn komi saman til fyrsta fundar að loknu sumarleyfi 3. september 2026, í samræmi við 4. mgr. 8. gr. samþykkta Ísafjarðarbæjar. Meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur fer bæjarráð með sömu heimildir og bæjarstjórn hefur ella.

6. Ráðning bæjarstjóra - 2026050219

Tillaga forseta um ráðningu Gylfa Ólafssonar, sem bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar. Jafnframt lagður fram til samþykktar ráðningarsamningur.

7. Samþykkt um stjórn Ísafjarðarbæjar - breyting 2026 - 2026050011

Forseti leggur fram til nýrar fyrri umræðu og samþykktar breytingar á 8. og 48. gr. samþykkta um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar, í samræmi við minnisblað, en ein umræða fór fram á síðasta kjörtímabili.

8. Stjórn Fasteigna Ísafjarðarbæjar ehf. 2026-2030 - 2026050236

Boðað verður til aukaaðalfundar stjórnar Fasteigna Ísafjarðarbæjar 2026 síðar í júní og leggur forseti til að ný stjórn verði skipuð Kristjáni Þór Kristjánssyni, Svanfríði Bergvinsdóttur og Gylfa Ólafssyni.

9. Kosning í fulltrúaráð Velferðarþjónustu Vestfjarða 2026-2030 - 2026050223

Tillaga forseta um kosningu fulltrúaráð Velferðarþjónustu Vestfjarða 2026-2030.

10. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026-2030 - 2026050225

Tillaga forseta um kosningu á Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026-2030

11. Fulltrúaráð Fjórðungssambands Vestfirðinga 2026-2030 - 2026050230

Tillaga forseta um kosningu í fulltrúaráð Fjórðungssambands Vestfirðinga 2026-2030.

12. Kjörnefnd Fjórðungssambands Vestfirðinga 2026-2030 - 2026050227

Tillaga forseta um kosningu í kjörnefnd Fjórðungssambands Vestfirðinga 2026-2030.

13. Svæðisskipulagsnefnd Vestfjarða 2026-2030 - 2026050232

Tillaga forseta um kosningu í svæðisskipulagsnefnd Vestfjarða 2026-2030.

14. Farsældarráð Vestfjarða 2026-2030 - 2026050233

Tillaga forseta um kosningu í farsældarráð Vestfjarða 2026-2030.

15. Úrgangsráð Vestfjarða 2026-2030 - 2026050234

Tillaga forseta um kosningu í úrgangsráð Vestfjarða 2026-2030.

16. Stjórn Hvetjanda 2026-2030 - 2026050237

Boðað hefur verið til aðalfundar Hvetjanda 23. júní 2026, og situr Nanný Arna Guðmundsdóttir í stjórn Hvetjanda fyrir hönd Ísafjarðarbæjar.

Forseti leggur til að umboð hennar verið staðfest.

17. Fulltrúaráð Háskólaseturs Vestfjarða 2026-2030 - 2026050231

Tillaga forseta um kosningu í fulltrúaráð Háskólaseturs Vestfjarða 2026-2030.

18. Skólanefnd Tónlistarskóla Ísafjarðar 2026-2030 - 2026050228

Tillaga forseta um kosningu í Skólanefnd Tónlistarskóla Ísafjarðar 2026-2030.

19. Fulltrúaráð EBÍ - Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélags Íslands 2026-2030 - 2026050226

Tillaga forseta um kosningu í fulltrúaráð Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélags Íslands 2026-2030.

20. Aukaþing Fjórðungsþing Vestfirðinga - að vori 2026 - 2026050240

Lögð fram til kynningar þinggerð Aukaþings Fjórðungssambands Vestfirðinga sem haldið var 15. apríl 2026.

21. 71. Fjórðungsþing Vestfirðinga - á kosningaári - 2026050239

Lagt fram til kynningar boð á 71. Fjórðungsþing Vestfirðinga, en þingið er haldið 24. júní 2026 í fjarfundi.

Fundargerðir til kynningar

22. Bæjarráð - 1369 - 2605001F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1369. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 7. maí 2026.

Fundargerðin er í 15 liðum.

23. Fjallskilanefnd - 20 - 2605007F

Lögð fram til kynningar fundargerð 20. fundar fjallskilanefndar, en fundur var haldinn 11. maí 2026.

Fundargerðin er í 2 liðum.

24. Menningarmálanefnd - 180 - 2604027F

Lögð fram til kynningar fundargerð 180. fundar menningarmálanefndar, en fundur var haldinn 8. maí 2026.

Fundargerðin er í 7 liðum.

25. Skipulags- og mannvirkjanefnd - 672 - 2605006F

Lögð fram til kynningar 672. fundargerð skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 13. maí 2026.

Fundargerðin er í 10 liðum.

26. Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 43 - 2605005F

Lögð fram til kynningar fundargerð 180. fundar skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 12. maí 2026.

Fundargerðin er í 5 liðum.