571. fundur bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar kemur saman til 571. fundar fimmtudaginn 7. maí nk. kl. 17. Fundurinn fer fram í fundarsal bæjarstjórnar á annarri hæði í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði, og er öllum opinn.
Bein útsending af fundinum er á Youtube-rás Ísafjarðarbæjar
Dagskrá
Almenn mál
1. Ársreikningur Ísafjarðarbæjar 2025 - 2025120097
Bæjarstjóri leggur fram til síðari umræðu og samþykktar Ársreikning Ísafjarðarbæjar, stofnana hans og fyrirtækja fyrir starfsárið 2025.
2. Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026 - viðauki 7- Hvetjandi hf. - 2025120020
Tillaga frá 1368. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 30. apríl 2026, um að bæjarstjórn samþykki viðauka 7 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2026, vegna
hlutafjáraukningar í Hvetjanda.
Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er engin.
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 274.600.000,-
Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 581.600.000,-
3. Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026 - viðauki 8 - Mennningarmiðstöð Edinborg - 2025120020
Lagður fram til samþykktar viðauki 08 varðandi styrkveitingu til Menningarmiðstöðvarinnar Edinborgar, að fjárhæð kr. 5.400.000.
Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er engin.
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 274.600.000,-
Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 581.600.000,-
4. Nefndarmenn 2022-2026 - undirkjörstjórnir - 2022050135
Forseti bæjarstjórnar leggur til við bæjarstjórn að kjósa neðangreinda aðila í undirkjörstjórnir Ísafjarðarbæjar, vegna sveitarstjórnarkosninga 16. maí 2026:
I.-III. kjördeild Ísafjörður og Hnífsdalur:
15 aðalfulltrúar: Grímur Daníelsson, Eggert Stefánsson, Sturla Stígsson, Ragnhildur Ágústsdóttir, Salmar Már Salmarsson Hagalín, Gunnlaugur Finnbogason, Gunnar Ingi Kristjánsson, Helga Salóme Ingimarsdóttir, Rakel Sylvía Björnsdóttir, Vignir Örn Pálsson, Fanný Margrét Bjarnardóttir, Einar Bragi Guðmundsson, Guðbjörg Ebba Högnadóttir, Steinn Daníel Þrastarson, Helga Rebekka Stígsdóttir
9 varafulltrúar: Halla Sigrún Sveinbjörnsdóttir, Matthildur Helgadóttir, Ingibjörg Júlíanna Sveinsdóttir, Gísli Steinn Njálsson, Halla Ólafsdóttir, Edda Björk Magnúsdóttir, Teitur Magnússon, Kristín H Guðjónsdóttir.
IV. kjördeild Suðureyri:
5 aðalfulltrúar: Svala Jónsdóttir, Þorleifur Sigurvinsson, Jóhannes Aðalbjörnsson, Emilia Agata Górecka, Vilborg Ása Bjarnadóttir.
4 varafulltrúar: Smári Karvel Guðmundsson, Svavar Guðmundsson, Valur S Valgeirsson, Lilja Einarsdóttir.
V. kjördeild Flateyri:
5 aðalfulltrúar:
Jóhanna Maggý Kristjánsdóttir, Erla Margrét Gunnarsdóttir, Hrefna Erlinda Valdemarsdóttir, Guðmundur Halldórsson, Svandís Rós Ívarsdóttir
1 varafulltrúi: Trausti Breiðfjörð Magnússon
VI. kjördeild Þingeyri:
5 aðalfulltrúar: Bjarney Sólveig Snorradóttir, Ásta G Kristinsdóttir, Elsa María Thompson, Ásta Kristín Pjetursdóttir, Vaida Braziunaite.
1 varafulltrúi: Valdís Kristjánsdóttir
Fulltrúar til talningar: Sturla Stígsson, Gunnlaugur Finnbogason, Helga Salóme, Ingimarsdóttir, Vignir Örn Pálsson, Fanný Margrét Bjarnardóttir, Helga Rebekka
Stígsdóttir, Margrét Kristjánsdóttir, Gísli Steinn Njálsson.
Varafulltrúar til talningar: Steinn Daníel Þrastarson, Ingibjörg Júlíanna Sveinsdóttir.
5. Ásgeirsgata 2 - samkomulag um úthlutun lóðar - 2025010224
Tillaga frá 1368. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 30. apríl 2026, um að bæjarstjórn samþykki viljayfirlýsingu við Hraðfrystihúsið Gunnvöru hf. um lóðaúthlutun að Ásgeirsgötu 2 á Ísafirði, til hafnsækinnar starfsemi.
6. Reglur Ísafjarðarbæjar um launalaust leyfi starfsmanna - 2026040201
Tillaga frá 1368. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 30. apríl 2026, um að bæjarstjórn samþykki reglur Ísafjarðarbæjar um launalaus leyfi starfsmanna.
7. Áfangastaðaáætlun Vestfjarða - 2025020175
Tillaga frá 1368. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 30. apríl 2026, um að bæjarstjórn samþykki Áfangastaðaáætlun Vestfjarða 2026.
8. Hauganes - Beiðni um lóðaúthlutun - 2026040101
Tillaga frá 670. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 16. apríl 2026, um að bæjarstjórn samþykki að Fjallaból ehf. fái úthlutað til uppbyggingar lauga, hótels og heilsuræktarstöðvar, land á Hauganesi í Skutulsfirði, á grundvelli 6. gr. úthlutunarreglna Ísafjarðarbæjar.
9. Áætlun eignamarka jarða í landeignaskrá - 2025060184
Tillaga frá 670. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn apríl 2026, um að bæjarstjórn samþykki að fenginn verði ráðgjafi til að meta virði jarðarinnar Reykjanes L141585 í Ísafjarðardjúpi og mögulega framtíðarnýtingu svæðisins.
10. Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2008-2020 - breyting - Eyrarkláfur - 2025100173
Tillaga frá 671. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 30. apríl 2026, um að bæjarstjórn samþykki að heimila auglýsingu á tillögu að breytingum á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020, vegna Eyrarkláfs, skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
11. Úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum 2026-2027 - 2026030291
Tillaga frá 40. fundi skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn apríl 2026, um að bæjarstjórn samþykki uppfærðar reglur um úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum þar sem skýrara er tekið fram að börn í 1.-4 bekk æfa ekki á Torfnesi eftir kl. 16:00 á daginn þar sem mikil aðsókn er í þá tíma hjá eldri flokkum.
12. Life - Icewater 2025-2030 - 2025020024
Tillaga frá 168. fundi umhverfis- og framkvæmdanefndar, en fundur var haldinn apríl 2026, um að bæjarstjórn samþykki að samið verði við lægstbjóðanda á grundvelli niðurstöðu örútboðsins.
13. Forvarnarstefna Ísafjarðarbæjar 2025 - 2025030036
Tillaga frá 503. fundi velferðarnefndar, en fundur var haldinn 27. apríl 2026, um að bæjarstjórn samþykki Forvarnar- og lýðheilsustefnu Ísafjarðarbæjar 2026-2031.
14. Svæðisskipulag vestfirskra sveitarfélaga - 2022110080
Tillaga frá forseta bæjarstjórnar um að samþykkja tillögu svæðisskipulagsnefndar um Svæðisskipulag Vestfjarða 2025-2050, á grundvelli samþykkis 26. fundar Svæðisskipulagsnefndar Vestfjarða, þann 4. maí 2026.
Fundargerðir til kynningar
15. Bæjarráð - 1367 - 2604007F
Lögð fram til kynningar fundargerð 1367. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 16. apríl 2026.
Fundargerðin er í 12 liðum.
16. Bæjarráð - 1368 - 2604016F
Lögð fram til kynningar fundargerð 1368. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 30. apríl 2026.
Fundargerðin er í 19 liðum.
17. Notendaráð fatlaðs fólks á Vestfjörðum - 2 - 2604012F
Lögð fram til kynningar fundargerð 2. fundar notendaráðs fatlaðs fólks á Vestfjörðum, en fundur var haldinn 16. apríl 2026.
Fundargerðin er í 4 liðum.
18. Hafnarstjórn - 270 - 2604025F
Lögð fram til kynningar fundargerð 270. fundar hafnarstjórnar, en fundur var haldinn 30. apríl 2026.
Fundargerðin er í 6 liðum.
19. Sameinuð almannavarnanefnd Ísafjarðarbæjar og Súðavíkurhrepps - 44 - 2604015F
Lögð fram til kynningar fundargerð 44. fundar sameinaðrar almannavarnanefndar Ísafjarðarbæjar og Súðavíkurhrepps, en fundur var haldinn 5. maí 2026.
Fundargerðin er í 3 liðum.
20. Skipulags- og mannvirkjanefnd - 671 - 2604023F
Lögð fram til kynningar fundargerð 671. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 30. apríl 2026.
Fundargerðin er í 11 liðum.
21. Skipulags- og mannvirkjanefnd - 670 - 2604009F
Lögð fram til kynningar fundargerð 670. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 16. apríl 2026.
Fundargerðin er í 5 liðum.
22. Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 42 - 2604019F
Lögð fram til kynningar 42. fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 29. apríl 2026.
Fundargerðin er í 9 liðum.
23. Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 168 - 2604020F
Lögð fram til kynningar fundargerð 168. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar, en fundur var haldinn 29. apríl 2026.
Fundargerðin er í 7 liðum.
24. Velferðarnefnd - 503 - 2604021F
Lögð fram til kynningar fundargerð 503. fundar velferðarnefndar, en fundur var haldinn 27. apríl 2026.
Fundargerðin er í 1 lið.
25. Velferðarnefnd - 502 - 2604008F
Lögð fram til kynningar fundargerð 502. fundar velferðarnefndar, en fundur var haldinn 15. apríl 2026.
Fundargerðin er í 3 liðum.