567. fundur bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar kemur saman til 567. fundar fimmtudaginn 5. mars kl. 17. Fundurinn fer fram í fundarsal bæjarstjórnar á annarri hæði í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði, og er öllum opinn.
Bein útsending af fundinum er á Youtube-rás Ísafjarðarbæjar.
Dagskrá
Almenn mál
1. Þjónustusamningur Björgunarsveitin Sæbjörg 2026 - 2026020100
Tillaga frá 1360. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 19. febrúar 2026, um að bæjarstjórn samþykki þjónustusamning við Björgunarsveitina Sæbjörgu til 5 ára.
2. Loftslagsstefna Ísafjarðarbæjar - 2025060021
Tillaga frá 166. fundi umhverfis- og framkvæmdanefndar, en fundur var haldinn 25. febrúar 2026, um að bæjarstjórn samþykki Loftslagsstefnu Ísafjarðarbæjar, og felli þar með út gildi Umhverfisstefnu Ísafjarðarbæjar frá árinu 2017.
3. Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026 - viðauki 3 - framkvæmdaáætlun grafa - 2025120020
Tillaga frá 1361. fundi bæjarráðs, en fundur var haldin þann 26. febrúar 2026, um að bæjarstjórn samþykki viðauka 3 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2026 vegna breytinga á framkvæmdaáætlun 2026.
Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er kr. 0.
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er kr. 0 eða óbreytt afkoma í kr. 274.600.000.
Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 0 eða óbreytt afkoma í kr. 581.600.000.
4. Reglur um innritun og dvöl barna í leikskólum Ísafjarðarbæjar - 2026020067
Tillaga frá 39. fundi skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar sem haldin var þann 16. febrúar 2026 um að bæjarstjórn samþykki uppfærðar reglur um innritun og dvöl barna í leikskólum Ísafjarðarbæjar.
5. Endurskoðaðar reglur um skólahverfi, umsókn og innritun í grunnskóla Ísafjarðarbæjar - 2026010247
Tillaga frá 39. fundi skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar sem haldin var þann 16. febrúar 2026, um að bæjarstjórn samþykki uppfærðar reglur um skólahverfi, umsókn og innritun í grunnskóla Ísafjarðarbæjar.
Fundargerðir til kynningar
6. Bæjarráð - 1360 - 2602018F
Lögð fram til kynningar fundargerð 1360. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 19. febrúar 2026.
Fundargerðin er í 11 liðum.
7. Bæjarráð - 1361 - 2602022F
Lögð fram til kynningar fundargerð 1361. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 26. febrúar 2026.
Fundargerðin er í 5 liðum.
8. Nefnd um framtíðarhúsnæði leik- og grunnskóla í Skutulsfirði - 3 - 2602015F
Lögð fram til kynningar fundargerð nefndar um framtíðarhúsnæði leik- og grunnskóla í Skutulsfirði, en fundur var haldinn 18. febrúar 2026.
Fundargerðin er í 1 lið.
9. Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 39 - 2602014F
Lögð fram til kynningar fundargerð 39. fundar skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 16. febrúar 2026.
Fundargerðin er í 3 liðum.
10. Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 166 - 2602021F
Lögð fram til kynningar fundargerð 166. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar, en fundur var haldinn 25. febrúar 2026.
Fundargerðin er í 4 liðum.